Athugið: Hvítbók.vg metur Þorstein M. Jónsson hugsanlega til útrásarvíkings og viðskiptajöfurs? Við bendum Þorsteini á að ef við förum með staðreyndarvillur og/eða hann vill einhverjar úrbætur um umfjöllun um sig á Hvítbók.vg þá biðjum við Þorstein um að senda okkur póst á
hvitbok@hvitbok.vg Við munum taka allar ábendingar um hugsanlegar staðreyndarvillur til skoðunar. Hvítbók.vg er ekki að dæma hugsanlega útrásarvíkinga og viðskiptajöfra fyrirfram um hugsanlega meinta glæpi eða afglöp í starfi, heldur var ráðist í þetta verkefni til að vera með stærsta uppflettirit um Miklahvell í haust á einum stað.
Verkefnið verður kynnt um allan heim síðar í ár á erlendum tungumálum. Vinna er þegar hafin á því verkefniÞorsteinn M. Jónsson (f. 18. febrúar 1963) er stjórnarformaður Vífilfells hf.[1] og fyrrverandi stjórnarformaður Glitnis hf. Hann hefur átt sæti í stjórnum ýmissa fleiri fyrirtækja, þeirra á meðal FL Group hf Refresco Holding BV., 365 hf.og Teymis hf.
Þorsteinn lauk Cand. oecon prófi (BA í hagfræði) frá Háskóla Íslands árið 1988 og hlaut MA gráðu í hagfræði frá Northwestern Unive

rsity árið 1991.
Þorsteinn starfaði sem hagfræðingur, fyrst hjá Seðlabanka Íslands og síðan Samtökum Iðnaðarins þar til hann var ráðinn sem framkvæmdastjóri Vífilfells 1996. Því starfi gegndi hann til ársins 2005 þegar hann tók við sem stjórnarformaður fyrirtækisins.[9] Þorsteinn hefur samhliða störfum sínum gegnt hlutverki fjárfestis og hefur tekið þátt í margvíslegum verkefnum á Íslandi og erlendis á undanförnum árum.
Hann var kosinn stjórnarformaður Glitnis í febrúar 2007,þá áreiðanlega einn yngsti stjórnarformaður alþjóðlegrar fjármálastofnunar af þessarri stærðargráðu. Þorsteinn býr í Reykjavík og London, er fráskilinn og á eitt barn. Faðir hans er Jón Þórarinsson, tónskáld.