Þorgeir Eyjólfsson er forstjóri Lífeyrissjóðs Verslunarmanna. Laun hans hafa verið um 30 milljónir á ári. „Þetta er hluti af mínum starfskjörum,“

segir Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna sem hefur þegið þrjátíu milljónir á ári í laun fyrir störf sín. Honum hefur verið útvegaður tíu milljón króna Cadillac Escalade til afnota í boði sjóðsins. Aðspurður hvort eldsneyti sé innifalið í þeim starfskjörum segir Þorgeir svo vera. Eftir því sem DV kemst næst eyðir lúxusjeppinn um það bil 25 lítrum á hundraði í akstri innanbæjar en getur þó farið upp í 30 lítra á hundraði ef allur kraftur hans er notaður. Sem dæmi má nefna tekur það íslenska láglaunamanneskju hundrað og fimm ár að borga lúxusjeppa Þorgeirs með iðgjöldum sínum sé miðað við fjögur prósenta gjöld. Þorgeir býr rúman kílómetra frá vinnustað sínum í Húsi verslunarinnar við Kringluna.