Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Snekkjan flutt úr landi

Snekkjan flutt úr landi

Á leið úr landi. Snekkjan verður flutt úr landi á næstu dögum.

Á leið úr landi. Snekkjan verður flutt úr landi á næstu dögum.

Þriðjudagur 23. júní 2009 kl 08:15

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Steingrímur Wernersson kenndur við Milestone mun á næstu dögum flytja snekkju sína úr landi. Snekkjan var hífð upp á bakka í Sundahöfn fyrir helgi. Steingrímur er búinn að selja hjólhýsi sitt, torfæruhjól og lúxusjeppana síðustu vikur og er fluttur til Bretlands.

Snekkja útrásárvíkingsins Steingríms Wernerssonar var hífð upp úr Sundahöfn í Reykjavík síðasta föstudag og sett á fleka í höfninni þar sem hún bíður þess að vera flutt úr landi með gámaflutningaskipi Eimskips á næstu dögum. Snekkjan, sem heitir Almira, er af gerðinni Sealine S34 og er talin vera smíðuð árið 2005 eða 2006. Samkvæmt upplýsingum frá þeim sem eru kunnugir slíkum bátum, má ætla að báturinn kosti á fimmta tug milljóna króna. Snekkjan hefur verið geymd undanfarin ár í Snarfarahöfn í Reykjavík, þar sem samnefndur sportbátaklúbbur hefur aðstöðu. Nafn snekkjunnar, Almira, þýðir jafnan prinsessa.

Allt um málið í DV í dag