Valdabaráttan innan Vinstri-grænna hefur aldrei náð öðrum eins hæðum. Turnarnir tveir, Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon leiðtogi eru á öndverðri skoðun hvað varðar Icesave-klafann og raunar margt fleira.
Steingrímur J. vill ólmur samþykkja ábyrgðina til Breta og Hollendinga en Ögmundur er því andvígur. Vandinn er sá að ef samningurinn fellur í þinginu er ríkisstjórnin fallin og hugsanlega er pólitísk framtíð Steingrímur J. í uppnámi.