<< Til Baka Senda á Facebook

Steingrímur J. Sigfússon

Steingrímur Jóhann Sigfússon (fæddur 4. ágúst 1955), er fjármálaráðherra í ríkisstjórn Íslands. Hann er formaður Vinstri hreyfingMynd:Steingrímur J. Sigfússon.jpgarinnar — græns framboðs. Áður var hann þingmaður Alþýðubandalags og varaformaður flokksins 1989-1995. Hann hefur setið á Alþingi frá árinu 1983. Steingrímur var samgönguráðherra og landbúnaðarráðherra frá 28. september 1988 til 30. apríl 1991.

Þann 16. janúar 2006 lenti Steingrímur í blílslysi rétt hjá Blöndósi, en náði sér aftur eftir það.

Steingrímur býr í Reykjavík en er fæddur og uppalinn á Gunnarsstöðum í Þistilfirði. Hann er sonur Sigfúsar Aðalbergs Jóhannessonar og konu hans, Sigríðar Jóhannesdóttur. Hann er þekktur fyrir að vera mikið fyrir útivist og hreyfingu. Sumarið 2005 gekk hann frá Reykjanestá að Langanesi. Í nóvember 2006 kom út eftir hann bókin Við öll - íslenskt velferðarsamfélag á tímamótum hjá Bókaútgáfunni Sölku.