Útgerðarfélagið Nesver ehf. í eigu Ásbjörns Óttarssonar alþingismanns var illa statt í árslok 2008. Það skuldaði bönkunum á annan milljarð króna og tapaði það árið hátt í 600 milljónum króna með þeim afleiðingum að skuldir urðu rúmlega 150 milljónum krónum meiri en eignir. Engu að síður greiddi Ásbjörn sér 65 milljóna króna arð út úr félaginu.
Ásbjörn Óttarsson, þigmaður Sjáflstæðisflokksins úr Snæfellsbæ, greiddi árið 2008 sér og Margréti Scheving, eiginkonu sinni, 65 milljóna króna arð úr útgerðar- og fiskvinnslufélaginu Nesveri ehf. á Rifi. Þetta var gert þrátt fyrir að félagið hefði tapað 574 milljónum króna þetta sama ár og bókfært eigið fé hafi í árslok verið neikvætt um 157 milljónir króna.
Núverandi stjórnarmenn í Nesveri eru Friðbjörn Ásbjörnsson, sonur Ásbjörns, og móðir hans. Margrét. Þar sem Ásbjörn og Margrét voru einu eigendur Nesvers ehf. árið 2008 voru þau ein bær til þess að taka ákvarðanir um arðgreiðsluna, en hún nemur 3.200 prósentum af hlutafé samkvæmt ársreikningi félagsins 2008.
Sama ár og ákvörðun um að greiða 65 milljóna króna arð var tekin nam bókfært tap Nesvers 574 milljónum króna. Ári áður greiddu Ásbjörn og Margét sér aðeins 20 milljónir króna í arð eða sem nemur 1.000 prósentum af tveggja milljóna króna hlutafé. Það árið hagnaðist félagið hins vegar um 558 milljónir króna.