Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

FME neitar DV um aðgang..

FME neitar DV um aðgang að Landsbankabréfi

Sigurjón Þ. Árnason fyrrverandi bankastjóri Landsbankans.

Sigurjón Þ. Árnason fyrrverandi bankastjóri Landsbankans.

Miðvikudagur 1. júlí 2009 kl 10:44

Höfundur: (johannh@dv.is)

Fjármálaeftirlitið hefur hafnað erindi DV um að fá aðgang að bréfi sem Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, þáverandi bankastjórar Landsbankans, rituðu Seðlabanka Hollands þann 23. september síðastliðinn. Morgunblaðið hefur afrit af bréfinu undir höndum og vitnað í það 23. síðastliðinn.

FME staðfestir að hafa fengið afrit af bréfi Landsbankans til hollenska seðlabankans en ber fyrir sig þagnarskylduákvæði í lögum frá 1998 um eftirlit með fjármálastarfsemi. „Beiðni yðar snýr að upplýsingum sem hafa að geyma einka-, fjárhags- og viðskiptamálefni Landsbanka Íslands hf. og falla eðli málsins samkvæmt undir þagnarskylduákvæði Fjármálaeftirlitsins. Með hliðsjón af framangreindu synjar Fjármálaeftirlitið ósk yðar um afhendingu umrædds bréfs,“ segir í svari FME til DV.

Þess má geta að stjórnvöld afléttu í gær trúnaði af 68 mismunandi skjölum sem tengjast bankahruninu og Icesave-málinu, líkt og það bréf gerir sem FME vill ekki veita DV aðgang að. Auk þess fá þingmenn aðgang að liðlega tuttugu trúnðarskjölum til viðbótar þegar Icesave-frumvarpið verður lagt fram á Alþingi. Stjórnvöld segjast ætla að birta hvert einasta skjal sem tengist málinu.