Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

5.4 milljarðar til Hreiðars og Sigurðar

Tæpir 5,4 milljarðar til Hreiðars og Sigurðar

Reikna má með að við fall Kaupþings í haust hafi lánveitingar til Hreiðars Más Sigurðssonar og Sigurðar Einarssonar numið nær tíu milljörðum króna en samkvæmt lánabókinni frá sumrinu 2006 námu lánin tæpum 5,4 milljörðum.

Reikna má með að við fall Kaupþings í haust hafi lánveitingar til Hreiðars Más Sigurðssonar og Sigurðar Einarssonar numið nær tíu milljörðum króna en samkvæmt lánabókinni frá sumrinu 2006 námu lánin tæpum 5,4 milljörðum. Stefán Karlsson.

Miðvikudagur 1. júlí 2009 kl 08:30

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Nánar um málið í DV í dag.

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, og Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, eru samtals skráðir fyrir tæplega 5,4 milljarða lánum í lánabók Kaupþings frá sumrinu 2006 sem DV hefur undir höndum. Lánin voru veitt til að kaupa hlutabréf í bankanum.

Hreiðar og Sigurður eru í öðru og þriðja sæti yfir stærstu lántakendur bankans í lánabókinni í lista sem merktur er „Stærsta áhættutaka gagnvart lögaðilum“. Meirihluti nafnanna á listanum voru þáverandi starfsmenn Kaupþings og veitir listinn yfirlit yfir lántökur til þeirra.

Í lánabókinni er einkahlutafélag í nafni Hreiðars, Hreiðar Már Sigurðsson ehf., skráð fyrir láni frá Kaupþingi upp á rúma 2,7 milljarða og Sigurður er skráður persónulega fyrir láni upp á rúma 2,6.