<< Til Baka Senda á Facebook

Sigurður Einarsson

Athugið: Hvítbók.vg metur Sigurð Einarsson hugsanlega til útrásarvíkings og bankamanns ?   Við bendum Sigurði á að ef við förum með staðreyndarvillur og/eða hann vill einhverjar úrbætur um umfjöllun um sig á Hvítbók.vg þá biðjum við Sigurði um að senda okkur póst á hvitbok@hvitbok.vg Við munum taka allar ábendingar um hugsanlegar staðreyndarvillur til skoðunar. Hvítbók.vg er ekki að dæma  hugsanlega útrásarvíkinga og viðskiptajöfra  fyrirfram um hugsanlega meinta  glæpi eða afglöp í starfi, heldur var ráðist í þetta verkefni til að vera með stærsta uppflettirit um Miklahvell í haust á einum stað. Verkefnið verður kynnt um allan heim síðar í ár á erlendum tungumálum. Vinna er þegar hafin á því verkefni

Sigurður Einarsson er íslenskur hagfræðingur, viðskiptamaður og fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings.
Hann er í hópi hinna svokölluðu íslensku útrásarvíkinga, áður en bankahrunið varð átti hann yfir sex milljarða íslenskra króna og var með 12 milljónir króna á mánuði að meðaltali árið 2007. Í yfirlýsingu sem hann gaf út 9. október sagði hann, og stjórn Kaupþings, af sér vegna „atburðarás[ar] sem enginn sá fyrir eða gat haft stjórn á.  

Sigurður Einarsson hættur í stjórn Storebrand.Sigurður útskrifaðist sem hagfræðingur frá Kaupmannahafnarháskóla árið 1987 og öðlaðist réttindi sem löggiltur verðbréfamiðlari á EES árið 1994. Hann starfaði áður hjá Den Danske Bank á árunum 1982-8 og hjá Iðnaðarbankanum, þar til hann varð að Íslandsbanka, 1988-94. Hann kenndi stundakennslu við Háskóla Íslands 1993-7. Hann sat í stjórn Kauphallar Íslands 1993-7.

Sigurður hóf störf á verðbréfasviði Kaupþings hf. árið 1994, varð forstjóri þess 1997 og stjórnarformaður 2003-2008. Hann situr í stjórn Norvestia og Aurora velgerðarsjóðs.

Árið 2003 komust hann og Hreiðar Már Sigurðsson, sem báðir störfuðu þá sem forstjórar Kaupþings, í fréttirnar fyrir háa kaupréttarsamninga á hlutabréfum í Kaupþingi. Davíð Oddsson komst í fréttirnar sömuleiðis er hann sagði upp viðskiptum sínum við Kaupþing vegna þessa. Sigurður og Hreiðar drógu kaup sín á hlutabréfunum til baka og sagði Sigurður ástæðu þess að þeir Hreiðar hefðu hætt við kaupin þá „að samningarnir falla illa inn í íslenskan veruleika og við erum búnir að átta okkur á því núna