Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Þrír útrásarvíkingar tapa

Þrír stórlaxar tapa 77 milljörðum

Félög tengd Jóni Ásgeiri, Karli og Róberti tapa gríðarlegum fjármunum

Félög tengd Jóni Ásgeiri, Karli og Róberti tapa gríðarlegum fjármunum

Mánudagur 29. september 2008 kl 15:58

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Félög tengd þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Karli Wernerssyni og Róberti Wessman töpuðu samtals 77 milljörðum í dag þegar tilkynnt var að íslenska ríkið myndi eignast 75% í Glitni. Samkvæmt útreikningum blaðamanns þá er gengi bréfa í Glitni 2 en voru 15 fyrir helgi.

Þar liggur tap þeirra fjárfesta sem áttu í Glitni. Á mannamáli þýðir þetta að sá sem átti eina milljón í hlutabréfum í Glitni á föstudag á aðeins rúmar 120 þúsund krónur í dag. Markaðsvirði bankans í dag er því 112 milljarðar en var á föstudaginn um 234 milljarðar. Yfir eina helgi minnkaði því virði bankans um 122 milljarða króna. Blaðamaður DV reiknar markaðsvirði félagsins út frá kaupvirði ríkisins á 75% hlut en fyrir það greiddi ríkið 84 milljarða.

Stoðir, tengt Jóni Ásgeiri, tapar hvað mest eða rúmum 61 milljarði. Þáttur International ehf, dótturfyrirtæki Milestone sem er í eigu Karls Wernerssonar, tapar 11 milljörðum og Salt Investments ehf, í eigu Róbert Wessman, tapar 4,7 milljörðum.