Eyjan
Forsíða, Innlent - mánudagur, 17. september, 2007 - 20:33 Róbert Wessman: Gefur milljarð króna til Háskólans í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík hyggst feta nýjar brautir í fjármögnun og afla 2.000 milljóna króna frá einstaklingum og fyrirtækjum til uppbyggingar skólans. Í dag var tilkynnt um 1.000 milljóna króna framlag Róberts Wessman, forstjóra Actavis, til nýstofnaðs Þróunarsjóðs Háskólans í Reykjavík, en alls er stefnt að því að Þróunarsjóðurinn hafi 1.500 milljónir króna til ráðstöfunar.
Tilkynnt var um þetta á blaðamannafundi í dag og fer hér á eftir fréttatilkynning frá Háskólanum í Reykjavík:
Háskólinn í Reykjavík (HR) kynnir í dag, á 90 ára afmælisdegi Viðskiptaráðs Íslands, nýjar leiðir í fjármögnun skólans til að tryggja honum sess á meðal framsæknustu háskóla Evrópu. Þær miða meðal annars að því að bjóða einstaklingum og fyrirtækjum að koma með beinum hætti að uppbyggingu skólans. Gert er ráð fyrir að þetta skili háskólanum allt að 2.000 milljónum króna.
Háskólinn í Reykjavík flytur starfsemi sína að rótum Öskjuhlíðar eftir tvö ár og verður þar til húsa í einum best búna háskóla Evrópu. Stórhuga framlag Reykjavíkurborgar á landi undir háskólann hefur lagt grunninn að því að gera Reykjavík að evrópskri háskólaborg með nútímalegri háskólabyggingu og þekkingarfyrirtækjum á svæðinu.
Fjáröflun háskólans er ætlað að skapa skólanum enn frekari tækifæri til að styrkja akademíska stöðu sína, efla rannsóknarvirkni og leggja grunninn að alþjóðlegum háskóla í Reykjavík.
Ávinningur af uppbygginu öflugs alþjóðlegs háskóla er margþættur. Gott framboð hæfra einstaklinga á vinnumarkaði styrkir samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja og er forsenda fyrir komu erlendra þekkingarfyrirtækja og einstaklinga hingað til lands. Nemendur öðlast samtímis þekkingu á íslensku atvinnulífi og reynslu af alþjóðlegu starfsumhverfi. Íslendingar geta stundað fyrsta flokks nám hér á landi, ekki síður en erlendis, þar sem skólagjöldum er haldið í lágmarki og fjarlægðin er ekki hindrun til náms. Nemendur njóta handleiðslu íslenskra og erlendra sérfræðinga og kennara frá fjölmörgum skólum i Evrópu og Bandaríkjunum.
Gefið verður út nýtt hlutafé sem nemur um 250 milljónum króna. Eftir hlutafjáraukningu verða aðstandendur háskólans áfram þeir sömu, þ.e. Sjálfseignarstofnun Viðskiptaráðs um viðskiptamenntun (SVÍV) sem mun eiga 51% og Samtök iðnaðarins (SI) og Samtök atvinnulífsins (SA) með samtals um 5%, en auk þeirra munu nýir hluthafar fara með 44% hlutafjár. Samhliða hlutafjáraukningu verður stofnaður Þróunarsjóður HR með viðbótarfjárframlagi frá nýjum hluthöfum. Stefnt er að því að Þróunarsjóðurinn hafi um 1.500 millljónir króna til ráðstöfunar. Róbert Wessman, forstjóri hefur þegar ákveðið að leggja fram 1.000 milljónir króna sem hlutafé og framlag í Þróunarsjóð HR.
Menntamálaráðuneytið hefur frá stofnun Háskólans í Reykjavík staðið dyggilega við bakið á háskólanum og haft mikinn áhuga og skilning á uppbyggingu hans. Stuðningur og þátttaka einstaklinga og fyrirtækja í atvinnulífinu mun á engan hátt draga úr mikilvægi stuðnings stjórnvalda við háskólann og mun HR starfa áfram samkvæmt þjónustusamnigi skólans við ráðuneytið.
Auk þessarar fjáröflunar er fyrirhugað að gera þjónustusamninga við fyrirtæki hér heima og erlendis á sviði símenntunar, rannsókna og ráðgjafar. Bakhjörlum skólans gefst þannig kostur á að starfa með innlendum og erlendum sérfræðingum skólans, fá aðgengi að samstarfssamningum HR við MIT háskóla og aðra erlenda samstarfsaðila skólans og fá aðgengi að námsefni HR, fjarkennslu, öllum sérsniðnum lausnum og námskeiðum.
Allur arður af starfsemi Háskólans í Reykjavík, gjafafé, aðrir fjármunir úr Þróunarsjóði HR og verðmæti lands í eigu HR renna til skólans og verða einungis nýtt til frekari uppbyggingar á starfsemi og aðstöðu skólans. Eins og áður verður ekki heimilt að greiða út arð til hluthafa.
Enn öflugri og stærri hópur stuðningsaðila HR Um ástæður fyrir aðkomu sinni að uppbyggingu Háskólans í Reykjavík segir Róbert Wessman: „Gott menntakerfi er mikilvægur grunnur að velgengni þjóðarinnar. Það er mikill styrkur að búa að háskóla sem er samkeppnishæfur við leiðandi háskóla erlendis og með nýju fjármagni skapast tækifæri fyrir Háskólann í Reykjavík að ná ætlunarverki sínu. Það er von mín að aðkoma mín og annarra úr atvinnulífinu skapi HR tækifæri til að verða alþjóðlegur háskóli sem skipar sér á bekk framsæknustu skóla Evrópu“.
Erlendur Hjaltason, formaður Viðskiptaráðs Íslands, sagði á blaðamannafundi sem HR hélt í dag, að nú væri kjörið tækifæri til að fá einstaklinga og fyrirtæki í atvinnulífinu til að koma í auknum mæli að uppbyggingu háskólastarfseminnar og taka þar þátt og miðla af reynslu sinni af alþjóðavæðingu íslensks atvinnulífs. Það væri fagnaðarefni að kynna þessi merku tímamót á 90 ára afmælisdegi Viðskiptaráðsins en það hefur verið helsti bakhjarl skólans frá upphafi.
Útrás Íslendinga á sviði menntunar er hafin Með nýju fjármagni og samstilltu átaki bakhjarla og starfsmanna HR skapast ný sóknartækifæri fyrir Háskólann í Reykjavík sem hefur það að leiðarljósi að verða alþjóðlegur háskóli og skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði hér á landi. Til viðbótar við aðstöðu á heimsmælikvarða verður Háskólinn í Reykjavík þekktur fyrir sterk tengsl við atvinnulífið, brautryðjandi rannsóknarstarf og nýsköpun í kennslu. Reykjavík er með þessu komið á kortið sem alþjóðlegri háskólaborg og útrás Íslendinga á sviði menntunar er hafin.