Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Miðill: Leyniþjónusta götunnar

Róbert Wessman borgaði aldrei 5,7 ma. hlutafé í Glitni

15. janúar 2009 · Skrifað í Óflokkað 
Róbert Wessman

Róbert Wessman

5,7 milljarða hlutur Róberts Wessmans sem að sögn var keyptur í Glitni rétt fyrir þjóðnýtingu hans var aldrei greiddur. Samkvæmt heimildum LG innan bankakerfisins var eingöngu um pappírsviðskipti að ræða. Viðskiptin voru að frumkvæði Glitnis og voru til þess gerð að laga ímynd bankans, ekki ósvipað og gert var með Stím ehf.

Róbert sagði þrem dögum eftir þjóðnýtingu að það væri “aldrei gaman að tapa peningum en mikilvægast sé að horfa fram á veginn og finna lausnir á vandanum.”  Hann sagðist einnig “ekki missa svefn yfir þessari fjárfestingu - þótt hann viðurkenni að tímasetningin hefði getað verið betri.” Eru þessi ummæli skiljanleg í ljósi þess að hann tapaði engum peningum á sýndarfjárfestingu sinni.