Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Synjun forseta jafngildir traustsyfirlýsingu

05. jan. 2010 - 10:05

Össur 2004: Synjun forseta jafngildir traustsyfirlýsingu við lýðræðið í okkar samfélagi

 

Vignir Már Lýðsson

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sagði að ákvörðun forseta Íslands um að synja fjölmiðlalögunum árið 2004 jafngilti traustsyfirlýsingu við lýðræði í okkar samfélagi. Þjóðin fengi með hinni sögulegu ákvörðun þjóðhöfðingjans, tækifæri til þess að taka sjálf ákvörðun um erfitt mál sem hefur valdið djúpstæðum deilum.

Forseti Íslands hefur aðeins einu sinni beitt málskotsrétti sínum en það var þegar hann hafnaði að staðfesta fjölmiðlalög árið 2004.  Þá fagnaði Össur Skarphéðinsson, þá stjórnarandstæðingur, ákvörðun forsetans, og sagði við mbl.is:

„Þjóðin fær með hinni sögulegu ákvörðun þjóðhöfðingjans, tækifæri til þess að taka sjálf ákvörðun um erfitt mál sem hefur valdið djúpstæðum deilum.“

Hann bætti við að hann teldi að með þessum hætti væru þau átök best jöfnuð og allir að kalla eigi kost á að standa ósárir eftir.

„Forsetinn hefur með ákvörðun sinni tekið af allan vafa um að málskotsrétturinn er virkur og mikilvæg aðferð til þess að leyfa þegnunum að taka með milliliðalausum hætti ákvörðun um mál sem varða verulega þeirra eigið umhverfi. Ég tel að þetta hafi verið farsæl ákvörðun og minn flokkur, Samfylkingin, er þeirrar skoðunar að það eigi í framtíðinni að skapa farveg fyrir þegnana til þess að geta bundist samtökum um að krefjast þjóðaratkvæðis við tilteknar aðstæður.“


Hann sagðist telja að nú skipti mestu að brugðist verði rétt við þeim fyrirmælum stjórnarskrárinnar sem segja að við þessar aðstæður skuli þjóðaratkvæðagreiðsla verða eins fljótt og auðið er.

„Því tel ég að nú sé skylt að kveðja Alþingi saman hið allra fyrsta til að það megi setja lög um hvernig haga beri þjóðaratkvæðagreiðslunni,“ sagði Össur.

Bryndís Hlöðversdóttir, þingkona Samfylkingarinnar, segist ánægð með að forseti Íslands ætli að nýta þann málskotsrétt sem þjóðin hefur, með því að neita að staðfesta lög um eignarhald á fjölmiðlum. „Þetta mál var vissulega þess eðlis að það gaf fullt tilefni til þess,“ sagði Bryndís í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins.