<< Til Baka Senda á Facebook

Össur Skarphéðinsson


Vísir, 29. okt. 2009 20:16

Össur styrkti ævisögu Einars Benediktssonar

mynd
Mynd/Anton Brink

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, nýtti 300 þúsund krónur af ráðstöfunarfé sínu til að styrkja ævisögugerð Einars Benediktssonar, fyrrverandi sendiherra. Guðbjartur Hannesson, flokksbróðir Össurar og formaður fjárlaganefndar Alþingis, vill minnka ráðstöfunarfé ráðherra og setja um það skýrari reglur. Þetta kom fram í Kastljósi í kvöld.

Frá bankahruninu hafa ráðherrar úthlutað rúmum 80 milljónum sem hluta af ráðstöfunarfé sínu. Oftar en ekki virðast þessar úthlutanir lítið sem ekkert koma málaflokkum ráðherranna við. Ráðstöfunarfé ráðherra hefur verið liður á fjárlögum til fjölda ára og ætlað að bregðast við óvæntum útgjöldum. Frá aldamótum hafa ráðherra úthlutað tæplega 800 milljónum króna í ýmis verkefni. Fjallað var um málið í gær en svar hafði ekki borist frá utanríkisráðuneytinu.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, og Össur hafa úthlutað samtals tæpum fjórum milljónum til 14 verkefna frá bankahruninu í fyrra. Tveir stærstu styrkirnir voru 500 þúsund krónur styrkir sem fóru til kvikmyndafyrirtækis vegna heimildarmyndar á Gaza svæðinu og til Ljóssins, endurhæfingar krabbameinssjúkra.

Þá kom fram í þættinum í kvöld að Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, vill minnka ráðstöfunarfé ráðherra og setja um það skýrari reglur. Hann vill auk þess minnka framlög til stjórnmálaflokka og þingflokka í fjárlögum.


Hvítbók vinnur að umsögn um Össur Skarphéðinsson Samfylkingunni sem
var á vakt 18 mánuði fram að hruni og eftir.

Sendið okkur upplýsingar, myndir og annað efni á hvitbok@hvitbok.vg