Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Ólafur Ragnar fyrirlitinn

Föstudagur 11. desember 2009 kl 00:39

Höfundur: ritstjorn@dv.is

Baldur Hermannsson bloggari er ómyrkur í færslu sinni á Moggablogginu. Fyrirsögnin er fyrirlitnasti maður landsins, hvorki meira né minna. Þegar færslan er opnuð kemur í ljós að Baldur er að fjalla um Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands. ,,...Takmarkalaus sjálfhverfa, athyglissýki í hæstu hæðum, drýldni og dómgreindarleysi - það er svo vont þegar allir þessir eiginleikar hittast í einum og sama manninum," bloggar Baldur sem reyndar telst til aðdáenda Davíðs Oddssonar, ritstjóra Moggans og skrifar efalítið frá þeim sjónarhóli.
Baldur ber núverandi forseta saman við einn forvera hans. ,,... Ég sá einu sinni Kristján Eldjárn álengdar. Hann var að koma út úr Gamla bíói. Það stafaði af honum fögrum virðuleik. Við horfðumst í augu og mér fannst hann vera vinur minn. Síðan hefur mér þótt vænt um Kristján Eldjárn".
Baldur telur að forsetinn eigi þá einu von um uppreist æru að neita að staðfesta IceSave! Svo er að skilja að sá baggi sé forsetanum að kenna.
,, ...Hann getur lagað eitthvað fyrir sér með því að synja þessum ólögum staðfestingar. Því miður er það staðreynd að íslenska þjóðin steypti sér sjálf í það hyldýpi sem við dúsum í núna. Og það er líka gallsúr staðreynd að íslenska þjóðin kaus á sínum tíma þennan skelfilega forseta á Bessastaði," bloggar Baldur Hermannsson.