Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Birta rangfærslur..

Eyjan, Innlent - þriðjudagur - 13.10 2009 - 12:28

Forsetaembættið kvartar yfir skrifum Fréttablaðsins. Segir það birta rangfærslur um bréfaskriftir forsetans

bessastadir2.jpgForsetaritari hefur sent ritstjóra Fréttablaðsins bréf þar sem embættið “mótmælir ítrekuðum rangfærslum sem fram koma í fréttum blaðsins vegna þeirra bréfa forseta Íslands sem Rannsóknarnefnd Alþingis fékk í hendur”, eins og komist er að orði.

Eyjan hefur fengið afrit af bréfi Örnólfs Thorssonar, forsetaritara, til Jóns Kaldals, ritstjóra Fréttablaðsins. Það hljóðar svo í heild:

Skrifstofa forseta Íslands vill mótmæla ítrekuðum rangfærslum sem fram koma í fréttum blaðsins vegna þeirra bréfa forseta Íslands sem Rannsóknarnefnd Alþingis fékk í hendur. Í fyrstu frétt blaðsins um málið frá 5. október 2009 var fullyrt í undirfyrirsögn að um væri að ræða „sautján bréf frá forseta Íslands til erlendra aðila í þágu bankanna“. Í frétt blaðsins í dag 13. október 2009 segir í yfirfyrirsögn að forsetaembættið vilji ekki „afhenda sautján bréf til þjóðhöfðingja í þágu bankanna“. Efnisatriði beggja fréttanna eru síðan í sama stíl og þessar rangfærslur.

Alrangt er að hér sé um að ræða sautján bréf  „í þágu bankanna“, hvað þá heldur „sautján bréf til þjóðhöfðingja í þágu bankanna“.

Hið sanna er, eins og skýrt kemur fram í bréfi skrifstofu forseta til Rannsóknarnefndar Alþingis sem blaðamaður Fréttablaðsins Pétur Gunnarsson fékk afhent afrit af, að aðeins eitt bréf var skrifað í þágu banka eða fjármálafyrirtækis og aðeins hluti bréfanna er til þjóðhöfðingja. Eina bréfið sem skrifað var í þágu fjármálastofnunar var bréf til forseta Kasakstans vegna Creditinfo sem er fyrirtæki sem sérhæfir sig í hugbúnaði sem auðveldar bönkum og fjármálafyrirtækjum að halda skrár yfir skuldara og vanskilamenn.

Í bréfinu til Rannsóknarnefndar Alþingis segir ennfremur skýrt: „Þá er í fáeinum bréfum öðrum vikið að starfsemi íslenskra banka í tilteknu landi en þá jafnframt fjallað um ýmis efnisatriði önnur sem varða samvinnu Íslands og viðkomandi lands, t.d. á sviði orku- og umhverfismála, vísinda, tækni, heilbrigðismála, menntunar og menningar. Loks er í örfáum bréfum vikið að bönkunum í framhjáhlaupi og einu sinni nefnt það áhugamál fyrirsvarsmanns eins þeirra að fá William Jefferson Clinton, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, til að halda ræðu á Íslandi.“

Bréfið sem Fréttablaðið hefur undir höndum sýnir því skýrt hve rangar og villandi fyrrgreindar fullyrðingar í yfir- og undirfyrirsögnum og annarri frásögn eru. Skrifstofa forseta Íslands mælist eindregið til þess að Fréttablaðið sem vill vera vandað í sínum fréttaflutningi setji ekki slíkar rangfærslur í fyrirsagnir né endurtaki þær í meginmáli frétta.