Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Húsleit hjá Ólafi

Vísir, 22. maí. 2009 17:37

Húsleit hjá Samskipum

Ólafur Ólafsson virðist tengjast að minnsta kosti tveimur félögum sem húsleit var gerð hjá. Mynd/ GVA.

Einn af þeim 12 stöðum sem Sérstakur saksóknari gerði húsleit á í dag og á þriðjudag er Samskip, samkvæmt heimildum fréttastofu. Þá greinir RÚV frá því að annað félagið sé Kjalar, en fréttastofa hefur ekki fengið það staðfest. Bæði félögin eru tengd Ólafi Ólafssyni fjárfesti.

Í fréttatilkynningu sem Ólafur Hauksson, sérstakur saksóknari, sendi frá sér í dag kemur fram að rannsóknin tengist kaupum félagsins Q Iceland Finance ehf á 5,01% hlut í Kaupþing banka. Húsleitirnar fóru fram að undangengnum úrskurðum Héraðsdóms Reykjavíkur.

Til rannsóknar er grunur um meinta markaðsmisnotkun og eftir atvikum brot á auðgunarbrotakafla hegningarlaga í tengslum við umrædd kaup á hlutabréfum í bankanum í lok september 2008. Um er að ræða verulega fjárhagslega hagsmuni og rannsóknin tengist fjölda manns. Yfirheyrslur vegna rannsóknarinnar eru hafnar af hálfu embættisins.

Sérstakur saksóknari segir að aðgerðirnar í dag hafi verið víðtækar og hafist með leit á þremur stöðum samtímis kl. 10 í morgun. Alls tóku um 20 manns þátt í þeim þ.e. starfsmenn embættisins, lögreglumenn frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra sem og starfsmenn frá Fjármálaeftirlitinu.