Athugið: Hvítbók.vg metur Ólaf Ólafsson til hugsanlega útrásarvíkings og viðskiptajöfurs? Við bendum Ólafi á að ef við förum með staðreyndarvillur og/eða hann vill einhverjar úrbætur um umfjöllun um sig á Hvítbók.vg þá biðjum við hann um að senda okkur póst á
hvitbok@hvitbok.vg Við munum taka allar ábendingar um hugsanlegar úrbætur og yfirfara og meta. Hvítbók.vg er ekki að dæma hugsanlega útrásarvíkinga og viðskiptajöfra fyrirfram um hugsanlega meinta glæpi eða afglöp í starfi, heldur var ráðist í þetta verkefni til að vera með stærsta uppfletirit um bankahrunið í haust á einum stað.
Verkefnið verður kynnt um allan heim síðar í ár. Vinna er þegar hafin á því.
Ólafur Ólafsson (fæddur
23. janúar 1957) er
íslenskur kaupsýslumaður. Hann var ráðinn forstjóri
Samskipa hf. árið
1990. Árið
2003 varð hann starfandi stjórnarformaður Samskipa. Hann kom við sögu í baráttunni um
Ker hf. og var í for

svari fyrir
Kjalar ehf. sem hafði betur gegn fjárfestingarfélaginu Gretti hf. í baráttunni um félagið.
Ólafur var stjórnarformaður Alfesca og einnig Kjalars invest sem var annar stærsti hluthafi Kaupþings banka. Hann fór fyrir hópnum sem fékk Búnaðarbankann á silfurfati frá ríkisstjórn Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar.
Sumarið 2007 hófust deilur milli Ólafs og nágranna hans í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi, þar sem Ólafur á sumarbústað. Kvörtuðu nágrannarnir undan hávaða frá þyrlu sem Ólafur notar til að ferðast milli Reykjavíkur og sumarbústaðar síns, en hann gaf lítið fyrir kvartanirnar.
Breski söngvarinn Elton John er staddur á Íslandi en hann mun syngja fyrir gesti í fimmtugsafmæli Ólafs Ólafssonar, stjórnarformanns Samskipa, í kvöld, samkvæmt fréttum Stöðvar 2. Ólafur Ólafsson vildi ekki staðfesta þetta í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins nú síðdegis.
Á bloggvef Steingríms Ólafssonar kemur fram að Elton John stígur á svið klukkan 21:00 og flytur afmælisbarninu nokkur lög.
Auk Eltons Johns koma Stórsveit Reykjavíkur og Björgvin Halldórsson og Bubbi Morthens saman í fyrsta skipti á sviði og með þeim Kristín Stefánsdóttir.