Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Icesave staðgreiðsla...

blog Kristinnp 16.6.2009 | 15:26

Hvert er staðgreiðsluverðmæti ICESAVE - eignasafnsins í dag?

icesave "Hollendingar og Bretar hafa ekki enn leyft að Icesave-samningurinn verði gerður opinber en beiðni um slíkt hefur borist þeim frá íslenskum stjórnvöldum. Fjármálaráðherra segir vandasamt fyrir þingmenn að fjalla um samninginn ef leyfið fæst ekki en þeir fái þó allar upplýsingar sem máli skipti."

Til að geta fjallað um þetta mál - verður að opinbera þennan samning - ekki getur Alþingi fjallað um samning sem ekki má sýna?

Svo þarf að fá erlent ráðgjafafyrirtæki til að staðfesta með greinargerð hvert er staðgreiðsluverðmæti Icesave lána- og eignasafnsins í dag - væri það selt á affallamarkaði.

Staðgreiðsluverðmæti er það verð sem líklega fengist fyrir þetta eigna/lánasafn - ef það yrði selt nú gegn staðgreiðslu.

gjaldmiðlaskipti... Mismunurinn  - á höfuðstól eignasafnsins (720 milljarðar í dag?)  að frádregnu staðgreiðsluverðmæti - á að bókast á sérstök fjáraukalög sem leggja þarf fram á Alþingi og gjaldfærast strax í ríkisbókhald og færast á ríkisreikning 2009 - með áætlaðri vaxtagreiðslu af þessum mismun.

Þannig væri virt að fullu fjármálaákvæði stjórnarskrár lýðveldisins 40. 41. og 42. gr. lýðveldisins -  og lög um ríkisbókhald og ríkisreikning - sbr. síðustu færslu.


mbl.is Enn leynd yfir Icesave-samningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt