Talið er að Davíð Oddson þáverandi forsætisráðherra hafi fært Landsbankann á silfurfati til Samson hópsins. Það sem Davíð Oddsyni hafi líkað við Samson hópinn var að greiðslur fyrir Landsbankann voru peningar sem komu inn í landið vegna sölu Samson hópsins á Bravo bruggverksmiðjunni í Rússlandi. Samson hópurinn voru Björgólfur Guðmundsson, sonur hans Björgólfur Thor og Magnús Þorsteinsson.

Vegna hryðjuverkanna 11. september 2001 drógu margar fjármálastofnanir í heiminum að sér hendurnar með útlán, því ákvað Davíð Oddson að keyra kaupin í gegn hjá Samson hópnum. Einkavæðinganefndin sem var að störfum réð ekkert við Davíð Oddsson. Virðist sem Davíð og Halldór Ásgrímsson hafi skipt kökunni jnokkuð jafnt á milli sinna flokka þannig að Sjálfstæðisarmurinn fékk Landsbankann og hinn svokallaði S-hópur fékk Búnaðarbankann.
Talið er að Samson hópurinn hafi ekki bara fengið Landsbankann á silfurfati heldur einnig fengið 700milljón króna afslátt síðar meir ! .Ágreiningur kom síðan upp um listaverk í bönkum Landsbankans. Að lokum tók Björgólfur eldri til sinna ráða og greiddi 200 milljón krónur fyrir þau. (góð flétta að mati Hvítbókar og þjóðin varð róleg!).
Það tók nýja eigendur ekki nema 6 ár að setja Landsbankann í gjaldþrot.Margir vilja meina að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hafi fært bankanna í hendur tilvonandi
útrásarvíkinga á þeim tíma. Mynd að ofan sýnir að þarna var mjög gaman hjá Davíð Oddsyni
og Björgólfi Guðmundssyni ásamt Geir Haarde. Þessir sömu aðilar hafa það ekki eins gott
í dag gagnvart íslenskum almenning. Landsbankanum var stýrt í þrot á aðeins 6 árum og það þó "kaupendur" hafi fengið bankann á silfurfati. Björgólfur sagði í frægu Kastljós viðtali að hann myndi axla ábyrgð vegna gjaldþrtots Landsbankans, hann sagði það alls 12 sinnum í því viðtali.