Þrír í lánabókinni fóru til starfa í skilanefnd Kaupþings. Mynd DV.
Þrír starfsmenn Kaupþings, sem fengu lán frá bankanum, voru ráðnir til starfa í skilanefnd bankans skömmu eftir að bankinn var yfirtekinn af Kaupþingi. Þetta eru þau Bjarki Diego, sem verið hafði framkvæmdastjóri útlána í bankanum, Guðný Arna Sveinsdóttir, sem var yfir fjármála- og rekstrarsviði bankans og Guðni Níels Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri fjárstýringar.
Í helgarblaði DV er ítarleg úttekt á lánabók Kaupþings og listi yfir 22 af stjórnendum og lykilstarfsmönnum hans birtur. Bjarki var með tæplega 650 milljóna króna lán samkvæmt lánabókinni frá sumrinu 2006 og Guðný Arna var með rúmar 580 milljónir.
Þau hættu þó í skilanefnd bankans í kringum 20. október, tæpum tveimur vikum eftir að hann hafði verið yfirtekinn af Fjármálaeftirlitinu, og tóku við störfum í Nýja Kaupþingi.
Bjarka og Guðnýju var svo gert að hætta í bankanum um áramótin ásamt Þórarni Sveinssyni, sem einnig er á listanum með rúmlega 740 milljóna króna lán, og Jónasi Sigurgeirssyni og Benedikt Sigurðssyni, sem ekki eru á listanum. Guðný vildi ekki tjá sig um lánveitingarnar í samtali við DV og Bjarki ekki heldur en sagði þó að lánið hefði verið á hans kennitölu við fall bankans í haust. Persónuleg ábyrgð Bjarka fyrir láninu hefur því líkast til verið felld niður þann 25. september síðastliðinn.
Þegar Bjarki og Guðný hættu í skilanefndinni var annar maður á listanum úr lánabókinni ráðinn inn í skilanefndina, Guðni Níels Aðalsteinsson. Guðni er ennþá í skilanefndinni en hann hafði fengið samtals 417 milljóna króna lán til hlutabréfakaupa samkvæmt lánabókinni.
Ítarleg úttekt í helgarblaði DV.