Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Reyndu að stöðva leka...

Eyjan. Innlent - föstudagur, 31. júlí, 2009 - 21:27

Kaupþing reyndi að stöðva leka: Telur upplýsingarnar ekki eiga erindi til almennings

finnursveinbj.jpgNýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings sendu frá sér yfirlýsingu í kvöld vegna fréttar Sjónvarpsins, sem Eyjan greindi frá, og fjallaði um stórfellda fjármagnsflutninga ýmissa góðkunningja Kaupþings skömmu áður en bankinn fór í þrot í október.

Um var að ræða 209 blaðsíðna upplýsingar um lánveitingar til 205 fyrirtækja, sem skulduðu bankanum allt frá 8 upp í 225 milljarða króna (45 til 1250 milljónir evra). Þar á meðal er að finna gífurlega fjármagnsflutninga síðustu dagana fyrir bankahrun, einkum er varðar fyrirtæki tengd helstu eigendum bankans, s.s. Exista og Kjalar, auk fyrirtækja á borð við Baug og Samson.

Einsog sjá má á listanum inniheldur hann vel flest kunnustu fyrirtæki  íslensku útrásarinnar.

Nýja Kaupþing telur skylt að halda trúnaði við viðkomandi viðskiptavini

Í yfirlýsingunni Nýja Kaupþings og skilanefndarinnar viðurkennir bankinn að hafa reynt að fá eigendur vefsíðunnar WikiLeak til að fjarlægja upplýsingarnar af netinu, enda brjóti birting þeirra “ákvæði um þagnarskyldu í lögum um fjármálafyrirtæki.”

Í yfirlýsingunni segir jafnframt að verið sé að “rannsaka uppruna birtingarinnar” og að nýja bankanum beri “skylda til að halda trúnaði við viðskiptavini sína og koma í veg fyrir að óviðkomandi hafi aðgang að viðskiptaupplýsingum þeirra.” Af þeim sökum hafi verið ákveðið að fara fram á að upplýsingarnar yrðu fjarlægðar. Þá hefur Nýja Kaupþing gert Fjármálaeftirlitinu verið viðvart.

Telja upplýsingarnar ekki eiga erindi til almennings

Athygli vekur að ekki kemur fram í yfirlýsingunni hvers vegna bankinn kaus sjálfur að reyna að fá vefsíðueigendur til að fjarlægja upplýsingarnar, frekar en að vísa málinu einfaldlega til FME, sem hefði þá getað tekið slíka ákvörðun.

Þá vekur ekki síður athygli í yfirlýsingu bankans orðalagið “að upplýsingar um viðskiptavini Kaupþings eigi ekki erindi til almennings.”

Yfirlýsing Nýja Kaupþings og skilanefndar Kaupþings er svohljóðandi:

“Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings vekja athygli á að upplýsingar um lántakendur hjá gamla Kaupþingi sem birtar voru á erlendri vefsíðu og fjallað var um í sjónvarpsfréttum RÚV eru trúnaðarupplýsingar. Birting þeirra er í andstöðu við ákvæði um þagnarskyldu í lögum um fjármálafyrirtæki.

Verið er rannsaka uppruna birtingarinnar. Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings ber skylda til að halda trúnaði við viðskiptavini sína og koma í veg fyrir að óviðkomandi hafi aðgang að viðskiptaupplýsingum þeirra. Því var ákveðið að fara fram á að upplýsingarnar yrðu fjarlægðar af síðunni. Fjármálaeftirlitinu hefur þegar verið gert viðvart um málið.

Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings telja að upplýsingar um viðskiptavini Kaupþings eigi ekki erindi til almennings og sé brot á þeirri vernd sem bankaleynd á að veita viðskiptamönnum. Mikilvægt er að traust og trúnaður ríki milli fjármálastofnana og viðskiptavina. Með birtingu slíkra upplýsinga er því sambandi ógnað.

Í lögum um fjármálafyrirtæki segir um þagnarskyldu:

Stjórnarmenn fjármálafyrirtækis, framkvæmdastjórar, endurskoðendur, starfsmenn og hverjir þeir sem taka að sér verk í þágu fyrirtækisins eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem þeir fá vitneskju um við framkvæmd starfa síns og varðar viðskipta- eða einkamálefni viðskiptamanna þess, nema skylt sé að veita upplýsingar samkvæmt lögum. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.

Sá sem veitir viðtöku upplýsingum af því tagi sem um getur í 1. mgr. er bundinn þagnarskyldu með sama hætti og þar greinir. Sá aðili sem veitir upplýsingar skal áminna viðtakanda um þagnarskylduna.”