Margir af fyrrverandi stjórnendum Kaupþings, sem fengu stór lán til hlutabréfakaupa í bankanum, fengu líka fasteignalán hjá Kaupþingi. Nokkur fjöldi þeirra færði fasteignir sínar yfir á maka sína nokkru fyrir bankahrunið og aðrir nokkrum dögum eftir bankahrunið. Eins og fram hefur komið voru persónulegar ábyrgðir starfsmanna Kaupþings vegna hlutabréfalána felldar niður 25. september 2008.
Ekki er vitað til þess að beiðni um gjaldþrotaskipti einstakra starfsmanna Kaupþings, sem DV hefur fjallað um að undanförnu, hafi farið fram. Ef slík væri raunin væri hægt að ganga að fasteignum starfsmanna. Auk þess væri hægt að rifta svokölluðum gjafagjörningum sem virðast hafa átt sér stað hjá nokkrum af stjórnendum Kaupþings eftir bankahrunið. Ekki hefur fengist staðfest hvort einhver af þessum lánum séu svokölluð kúlulán. Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, fékk sem kunnugt er tvö kúlulán úr eigin lífeyrissjóði annað upp á 40 milljónir króna og hitt upp á 30 milljónir króna.