Nær öll bankastarfsemi á Íslandi er í höndum ríkisins eftir að Fjármálaeftirlitið yfirtók rekstur Kaup
þings í nótt. Það var gert á grundvelli nýju neyðarlaganna sem Alþingi setti á mánudagskvöld, eins og yfirtaka Landsbanka og Glitnis. Frá yfirtöku Kaupþings er sagt á vefsíðu Fjármálaeftirlitsins. Þeir Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri Kaupþings og Sigurður Einarsson stjórnarformaður, héldu á fund starfsmanna Fjármálaeftirlitsins skömmu eftir miðnætti. Fundur þeirra með eftirlitinu stóð í um hálfa klukkustund.
Kaupþing er sá banki sem hefur vaxið mest síðustu ár. Á fréttamannafundi í Iðnó í gær sagði Geir Haarde forsætisráðherra að ósennilegt væri að ríkið yfirtæki Kaupþing, það væri þó ekki útilokað.
Kaupthing Singer and Friedlander, dótturfélag Kaupþings í Bretlandi, var sett í greiðslustöðvun í gær. Daily Telegraph segir allt að 770 fjármála-og bankastarfsmenn í Lundúnum, Surrey, Glasgow, Birmingham og á eynni Man missa vinnuna við þrot Kaupthing Singer and Friedlander.
Kúlulán (e.
bullet loan) eða
eingreiðslulán eru yfirleitt
langtímalán þar sem engin
afborgun á sér stað fyrr en við lok
lánstímans.
Vextir eru annað hvort greiddir reglulega, t.d. einu sinni á ári, eða endurlánaðir og bætast þá við
höfuðstól lánsins. Slík lán eru gjarnan kölluð
blöðrulán vegna þess hvernig þau „blása út“.
Þessi tegund lána hefur þann kost fyrir
lántakandann að hann hefur fjármagnið lengur í höndum sínum sem samsvarar þeim afborgunum sem hann hefði annars þurft að greiða á lánstímanum.
Ókosturinn felst hins vegar í hárri lokagreiðslu þar sem greiða þarf upp allan höfuðstólinn í einni greiðslu. Algengast er að lántakandinn endurfjármagni þá lánið, nema á Íslandi, þar fá lykilmenn banka og aðrir gæðingar sérstaka meðferð.