Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Veðsettu bótasjóð Sjóvár fyrir Vafning

Veðsettu bótasjóð Sjóvár fyrir Vafning



Föstudagur 22. janúar 2010 kl 09:05

Höfundur: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is)

Nánar um málið í DV í dag.

Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóri Sjóvár, mun hafa borið því við í yfirheyrslum sem fóru fram yfir honum hjá sérstökum saksóknara að hann hafi engar ákvarðanir tekið varðandi fjárfestingar og lánveitingar Sjóvár á árunum fyrir hrunið. Forstjórinn fyrrverandi vissi sömuleiðis oft ekki hvaða samninga hann var að skrifa undir og hann gat ekki útskýrt hver tilgangurinn hefði verið með þeim samningum sem hann staðfesti með undirritun sinni.

Viðkvæði Þórs mun almennt hafa verið að hann hafi treyst starfsmönnum Milestone, forstjóranum Guðmundi Ólasyni og aðstoðarforstjóranum Jóhannesi Sigurðssyni, þegar þeir báðu hann um að skrifa undir skjöl og samninga sem tengdust Sjóvá. Þór mun nánast alltaf hafa borið því við að hann hafi skrifað upp á skjölin í góðri trú og vegna þess að honum hafi verið sagt að stjórn Sjóvár hefði samþykkt samningana sem um ræddi.

Niðurstaðan úr yfirheyrslunum yfir Þór er því sú, samkvæmt heimildum DV, að Þór hafi einfaldlega verið eins konar verkfæri í höndum starfsmanna Milestone og stærsta eiganda þess, Karls Wernerssonar. Þeir útbjuggu skjöl um fjárfestingar og lán sem síðan var farið með til Þórs og hann undirritaði, oft á tíðum án þess að vita nákvæmlega hvað það var sem hann var að skuldbinda tryggingafélagið til.