Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Þingmaður þrætir fyrir kúlulán

Þingmaður þrætir fyrir kúlulán

Mánudagur 7. september 2009 kl 18:28

Höfundur: ritstjorn@dv.is

Tryggvi Þór Herbertsson alþingismaður er á harðahlaupum frá kúluláni sem hann fékk á sínum tíma til að fjármagna kaup sín á hlut í bankanum Askar Capital. Þingmaðurinn hefur staðið í harðri deilu við Teit Atlason, bloggara á Eyjunni, sem sakaði hann um að vera kúlulánaþegi. ,,Að ég sé kúluspegúlant (aldrei fengið kúlulán hjá banka hvað þá fengið slíkt fellt niður)," bloggar Tryggvi. DV sagði frá því 10. mars að einkahlutafélag Tryggva, Varnagli, fékk 150 milljónir króna hjá Askar og aðra eins upphæð hjá Glitni. Þegar Tryggvi hætti hjá bankanum var samið um að hann losnaði undan kúlulánunum.