Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Partýið á íslensku útrásarsnekkjunni

13. feb. 2010 - 17:43Kaffistofan

Partýið á íslensku útrásarsnekkjunni - MYNDIR

Á kaffistofuna berast margar skemmtilegar kveðjur ellegar fróðleg bréf, sem vert er að gefa gaum. Stundum fylgja með þessum bréfum viðhengi, svo sem greinargerðir, samningar, tilkynningar eða myndir og er oft hnýsilegt að skoða það efni nánar.

Í dag rataði t.d. á kaffistofuna bréf, sem ástæða er til að birta í heild sinni:

Ég sé að fjölmiðlar, ekki síst DV og Pressan, hafa fjallað talsvert um málefni bræðranna Karls og Steingríms Wernerssona að undanförnu og ekki skrítið, þar sem sérstakur saksóknari hefur nú til skoðunar meðferð þeirra á Milestone og bótasjóði Sjóvár.

Ég tek eftir að í þessum fréttum hefur ekkert verið fjallað um glæsisnekkju þeirra Milestone-bræðra sem staðsett hefur verið í suður og austur Evrópu og er öll hin álitlegasta. Sagan segir að hún sé í eigu félags þeirra bræðra sem heitir því skemmtilega nafni Trudur og mun vera skráð á Tortóla, eins og margt annað í eigu íslensku útrásarinnar. Skútan mun skráð á Möltu, ef mig misminnir ekki.

Svo vill til að ég læt fylgja með þessari orðsendingu nokkrar myndir sem mér áskotnuðust og voru teknar í miklu Milestone partýii í snekkjunni í og við höfnina á Sikiley þegar útrásin stóð sem hæst. Ég þekki nú ekki allt fólkið á þessum myndum, en þarna má þó sjá Wernerssyni ásamt mökum, Þór Sigfússon sem þá var forstjóri Sjóvár og Guðmund Ólafsson forstjóra Milestone ásamt fleira góðu fólki.

Mér sýnist að þessar skemmtilegu myndir sýni ljóslega hversu náið hefur verið með eigendum og stjórnendum Sjóvár og Milestone og í framhaldinu væri gaman að fá upplýsingar frá skiptastjóra Milestone um hvort félagið hafi borgað fyrir snekkjuna eða afnot af henni, eða hvort hún er einfaldlega enn bundin við einhvern huggulegan bryggjukantinn í sólarlöndum og bíður þess að þeir bræður kíki næst við í næs helgarferð...

Á kaffistofunni telja menn engu við þetta athyglisverða bréf að bæta. Myndirnar af þessu þjóðkunna fólki má sjá hér að neðan, en við höfum því miður ekki upplýsingar um nafn ljósmyndarans...
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Kaffistofu Pressunnar?
Sendu okkur póst á kaffistofan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.