Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Jón Ásgeir Jóhannesson

Athugið: Hvítbók.vg metur Jón Ásgeir Jóhanneson  til hugsanlegs  útrásarvíkings og viðskiptajöfurs. Hvítbók.vg hefur ítrekað reynt að finna tölfupóstfang og símanúmer Jóns Ásgeirs en án árangurs. Við bendum Jóni á að ef við förum með staðreyndarvillur og/eða hann vill einhverjar úrbætur um umfjöllun um sig á Hvítbók.vg þá biðjum við hann um að senda okkur póst á hvitbok@hvitbok.vg Við munum taka allar ábendingar um hugsanlegar úrbætur og yfirfara og meta. Hvítbók.vg er ekki að dæma útrásarvíkinga fyrirfram um hugsanlega meintan glæp eða afglöp í starfi, heldur var ráðist í þetta verkefni til að vera með stærsta uppfletirit um Miklahvell í haust á einum stað. Verkefnið verður kynnt um allan heim síðar í ár. Vinna er þegar hafin á því. 

Jón Ásgeir Jóhannesson (fæddur 27. janúar 1968 í Reykjavík) er íslenskur kaupsýslumaður og forstjóri Baugs Group. Hann er einn af fyrirferðamestu viðskiptamönnum á Íslandi. Eftir bankahrunið hefur Jón komist í kastljós fjölmiðla á ný vegna stjórnarsetu hans í FL Group sem átti um þriðjungshlut í Glitni banka, nú Íslandsbanki hf.. Áður hafði Baugsmálið verið umfangsmikið sakamál sem snerist um meint lögbrot Jóns og fleiri stjórnenda Baugs. Því lauk með að Jón fækk skilorðsbundinn dóm.

Hann útskrifaðist frá Verzlunarskóla Íslands 1989 og stofnaði sama ár fyrstu Bónus-verslunina með föður sínum Jóhannesi Jónssyni.

Jón Ásgeir gerðist forstjóri Baugs Group árið 1998 og jók umsvif fyrirtækisins til muna. Hann hætti sem forstjóri í maí 2002 og gerðist stjórnarformaður fyrirtækisins í staðinn, en tók aftur við forstjórastólnum í nóvember sama ár.

Í árslok 2003 hafði fyrirtækið vaxið svo undir forystu Jóns Ásgeirs, að ekkert annað íslenskt fyrirtæki hafði jafnmikil umsvif erlendis, auk þess sem það var orðið stærsta fyrirtæki á Íslandi.

Þann 17. ágúst 2005 voru Jón Ásgeir og fleiri ákærðir fyrir 40 brot á lögum um bókhald og fleira. Flest brotin varða millifærslur milli hans sjálfs og fyrirtækisins. Hæstiréttur vísaði málinu aftur til Héraðsdóms Reykjavíkur haustið 2005 vegna formgalla.

Í lok september 2008 var bankinn Glitnir kominn í svo krappa stöðu að Seðlabankinn og ríkisstjórnin ákváðu að yfirtaka hann með því að kaupa 75% hlut fyrir 84 milljarða króna. Eitt af fyrirtækjunum sem Jón Ásgeir á stóran hlut í, Stoðir, átti stóran hlut í Glitni og tapaði tugmilljörðum á yfirtökunni. Jón Ásgeir var ekki ánægður með yfirtökuna og sagði bankann ekki hafa staðið eins illa og Seðlabanki áleit. Jón og aðrir þátttakendur í „útrásinni“ svokölluðu fengu mikla gagnrýni og ekki alla vinsamlega og var kennt um að hafa komið íslenska ríkinu og þjóðinni í skuldir og önnur vandræði. Bútur úr Wilkepedia.

Greinar eftir Jón Ásgeir