17. sep. 2009 - 07:20
Við sökkvum dýpra inn í kreppuna - Vanskilum fjölgar á ógnarhraða
VML
Einstaklingum sem eru á vanskilaskrá hefur fjölgað hratt frá bankahruninu. Þeim mun hins vegar fjölga enn hraðar á næstu tólf mánuðum verði ekkert að gert. Flestir þeirra sem eru á vanskilaskrá og líklegt er að lendi þar á næstunni eru frá 30 ára aldri og upp í 49 ára og með börn á framfæri sínu.
Þessar upplýsingar eru byggðar á tölum frá Creditinfo. Rúmlega 20 þúsund manns eru nú á vanskilaskrá, en verði ekkert að gert bætast 7.500 manns þar við á næstunni.
Starfandi stjórnarformaður Creditinfo segir í viðtali við Morgunblaðið að það sé gagnslaust að taka skuldastöðu einstaklinga á tilteknum tímapunkti, líkt og Seðlabankinn hafi gert, og nota það við ákvörðun á afskriftum á skuldum. Greiðslugetan í framtíðinni skipti öllu máli.