Eyjan, Innlent -
þriðjudagur, 18. ágúst, 2009 - 15:59
Norton Rose: Nokkur erlend fjármálafyrirtæki hafa þegar höfðað mál
Joseph Tirado, lögfræðingur hjá breska lögfræðifyrirtækinu Norton Rose segir í samtali við RÚV að nokkur erlend fjármálafyrirtæki hafa nú þegar höfðað mál til að freista þess að endurheimta fé sem þau töpuðu vegna íslenska bankahrunsins.
Hann vill ekki gefa upp um hvaða fyrirtæki væri að ræða eða fyrir hvaða dómstólum málin hefðu verið lögð fram en sagðist vita til þess að mörg önnur fyrirtæki, sem hefðu sett sig í samband við Norton Rose og samkeppnisaðila þeirra, ætluðu að fylgja fordæminu.
Í frétt Rúv er einnig haft eftir honum að yfirgnæfandi líkur séu á því að stór hópur banka og fjármálafyrirtækja sameinist um að höfða mál gegn íslenska ríkinu og hérlendum fjármálafyrirtækjum. Beinast lægi við að fara í gegnum íslenska dómstóla en margir aðrir möguleikar væru í stöðunni.
Skoðanakönnun Norton Rose um íslenska bankahrunið
, sem birt var í gær, sýndi að yfirgnæfandi meirihluti erlendra fjármálafyrirtækja telur Íslendinga hafa brotið bæði eigin lög og alþjóðalög og að bæði upplýsingar og gagnsæi hafi vantað í samskiptum stjórnvalda á Íslandi við kröfuhafa.