Eyjan, Innlent - fimmtudagur - 18.2 2010 - 10:32
Línan frá stjórnvöldum varðandi endurreisn útrásarvíkinga: Hægt að ná fram siðbót með veskinu
Ríkisstjórnin virðist ekkert ætla að aðhafast til að fá ákvörðun stjórnenda Arion banka í málefnum verslunarkeðjunnar Haga og skipafélagsins Samskipa hnekkt. Talsverðrar óánægju gætir með þetta í bloggskrifum víða á netinu og í athugasemdum lesenda við fréttir á Eyjunni. Meðal annars hafa menn spurt af hverju bankinn fylgi ekki hinum opinberu verklagsreglum sínum, sem meðal annars kveða á um að menn verði að njóta trausts í þjóðfélaginu eigi þeir að fá fyrirtæki sín aftur.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lýsti því yfir í ræðu á Viðskiptaþingi í gær, að hún væri andsnúin handstýringu stjórnmálamanna á bankakerfinu. Aftur á móti hvatti hún til þess að þeir einstaklingar stigju til hliðar í atvinnulífinu sem valdið hefðu lánadrottnum sínum, fyrirtækjum sínum eða viðskiptavinum eða jafnvel þjóðfélaginu í heild gríðarlegum skaða með starfsháttum sínum, og hefðu jafnvel stöðu grunaðra í formlegum rannsóknum vegna hrunsins. Jóhanna sagði í ræðunni að menn sem hefðu valdið skaða í atvinnulífinu væru ekki heppilegir samstarfsaðilar eða til forystu fallnir þegar hefja skyldi endurreisnina. Ekki leikur vafi á að með orðum sínum var Jóhanna m.a. að vísa til Baugsfeðganna Jón Ásgeirs og Jóhannesar Jónssonar og Ólafs Ólafssonar.
Þetta virðist nú vera hin opinbera lína frá ríkisstjórninni og hafa fleiri ráðherrar og stjórnarþingmenn tekið undir þetta sjónarmið.
Gylfi Magnússon ráðherra bankamála hefur tekið í sama streng og Jóhanna. Hann sagði á Alþingi á þriðjudaginn að það væri dómskerfisins að refsa mönnum hafi þeir brotið lög en ekki bankakerfisins. En jafnframt benti hann á að fyrirtæki mundu ekki lifa það af ef fólk hætti viðskiptum við þau. „Viðskiptaveldi er lítils virði ef enginn vill við það skipta,” sagði hann.
Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, segir í grein á Pressunni í gær að almenningur og stjórnmálamenn eiga að halda áfram að beita þrýstingi og krefjast siðbótar í íslensku viðskiptalífi. “Það er hægt að gera með endurbættum lögum og reglugerðum en ekki síður í gegnum veskið – Ætlum við að eiga viðskipti við fyrirtæki í eigu fyrrum útrásarvíkinga? “