Jóhanna Sigurðardóttir (f. í Reykjavík 4. október 1942) er forsætisráðherra Íslands og formaður Samfylkingarinnar. Hún er fyrsti kvenkyns for

sætisráðherra á Íslandi og fyrsti opinberlega samkynhneigði einstaklingurinn sem gegnir starfi forsætisráðherra í heiminum. Foreldrar hennar voru Sigurður Egill Ingimundarson alþingismaður og forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins og Karítas Guðmundsdóttir húsmóðir. Sambýliskona Jóhönnu er Jónína Leósdóttir en fyrri maki hennar var Þorvaldur Steinar Jóhannesson og eiga þau tvo syni.
Jóhanna starfaði sem flugfreyja hjá Loftleiðum og skrifstofumaður í Kassagerð Reykjavíkur 1971-1978. Hún hefur setið á Alþingi frá 1978 fyrir Alþýðuflokkinn, Þjóðvaka og síðast Samfylkinguna frá 1999. Jóhanna var félagsmálaráðherra 1987-1994, og svo aftur 2007-2009. Hún var varaformaður Alþýðuflokksins 1984-1993 og formaður Þjóðvaka 1995 allt til þess er sá flokkur hætti að starfa. Jóhanna tók við embætti forsætisráðherra af Geir H. Haarde þann 1. febrúar 2009 og varð þar með fyrsta konan á forsætisráðherrastóli á Íslandi. Jóhanna var kjörin formaður Samfylkingarinnar á landsfundi 28. mars 2009. Jóhanna er starfsaldursforseti Alþingis og hefur setið á þingi í rúmlega þrjá áratugi.