Meðal gesta í Silfri Egils um helgina var Illugi Gunnarsson alþingismaður. Bloggarinn Jónas Kristjánsson nefnir innkomu þingmannsins í umræðuna í færslu þar sem hann heggur eftir því að Illugi nefndi að í byrjun febrúar hefði verið góður tími til aðgerða.
„Þá féll einmitt ríkisstjórnin, sem Illugi studdi. Gaf hún sér þó áður tíma til að draga sjóð níu að landi á kostnað skattgreiðenda. Alltaf er gaman að sjá menn, sem hafa strikað yfir fortíð sína. Svo taumlaust, að þeir muna ekkert fyrir 1. febrúar. Afneitun fortíðar er alger,“ bloggaði Jónas.