Hvítbók er upplýsingasíða og uppflettirit um hugsanlega aðal gerendur vegna efnahagshrunsins á íslandi einnig eru upplýsingar um fleiri aðila og fyrirtæki sem geta tengst á ýmsan hátt. Sjái menn staðreyndarvillur óskum við eftir að fá ábendingar um það hvitbok@hvitbok.vg .jpg)
Verkefnið mun koma fram á erlendum tungumálum innan skamms áætlað í lok sumars. Eigendur eru nokkrir.
Frá eigendum:
Á Íslandi hafa fjölmiðlar verið reknir oft á tíðum með engar upplýsingar um eiginlega eigendur þeirra og oft á tíðum í umboði ákveðna hagsmuna sérvaldra gæðinga á Íslandi. Hvítbók.vg mun ekki upplýsa um eigendur www.hvitbok.vg sem stendur, fyrst stóð til að gera það en vegna óþægilegs atviks á fyrstu dögum heimasíðunnar verður einhver bið á því.
Heimasíðan er skráð á eyjunni Tortola í Bresku Jómfrúareyjunum sem útskýrir endingu heimilisfang hennar .vg Eitt er á hreinu að eigendur eru og vilja með engu móti vera bendlaðir við Vinstri Græna né aðra stjórnmálaflokka á Íslandi. Á Íslandi er komið fram eitt stærsta gjaldþrot heimsögunnar. Útrásarvíkingar og bankamenn fóru mikinn í skjóli stjórnmálaflokka og eftirlitsaðila. Eftir situr íslenskur almenningur með skuldaklafa sem þessir aðilar skilja eftir sig. Að mati eiganda
www.hvitbok.vg er íslenska flokkakerfið gerspillt og enn í örmum ákveðinna útrásarvíkinga og annara uppeldis gæðinga.
www.hvitbok.vg vill beina því til íslensk almennings að eina leiðin útúr ógöngum landsins er að á Íslandi myndist samstaða til að hreinsa til og byggja upp Nýtt Ísland án fjórflokksins og jafnvel án aðkomu stjórnmálaflokka vegna sérstæðna aðstæðna. Slíkt verður þó ekki gert með Alþjóða gjaldeyrissjóðnum né fjórflokknum eins og áður kom fram.
* Vert er að skoða þann möguleika á að vísa skuldum útrásarvíkinga og fyrrverandi bankaeigenda til föðurhúsanna og leysa íslensku þjóðina frá hörmungum skuldaklafa þessara óreiðumanna.
* Sú stefna og aðgerðir sem tvær síðustu ríkisstjórnir og ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna hafa haft eftir hrun að slá
skjaldborg utan um fjármagnseigendur á ekki að vera liðin. Það er íslenskur almenningur sem byggir upp þetta land og á ekki að gjalda fyrir afglöp og spillt störf umræddra gerenda.
* Spurt er þarf 320 þús manna þjóð að hafa 63 þingmenn? Það er umhugsunar efni að ef ekki væru jafn miklar auðlindir á Íslandi að landið væri ekki lengur byggilegt vegna þeirra skuldaklafa sem á íslenskan almennig hefur verið lagt, því eru Íslendingar í raun heppnir að eiga slíkar auðlindir. Því er brýnt að á Íslandi verði stokkað upp á réttan hátt, spilling og óheiðarleiki verði kvaddur í eitt skipti fyrir öll.
* Almenningur hefur horft uppá að gerð hefur verið atlaga til þess að ná til sín hluta af þessum auðlindum, útrásarvíkingar og aðrir uppeldis gæðingar flokkakerfisins á Íslandi hafa jafnvel gert þær tilraunir beint fyrir framan augu almennings. Slíkir þjófnaðir mega ekki takast. Því er áríðandi að spillt flokkakerfi á Íslandi verði stöðvað og nýtt lýðræði verði byggt upp og Nýtt Ísland rísi.
* Á Íslandi er þjóðaríþróttin ekki handbolti heldur stjórnmálaþvarg. Við teljum að hvergi á byggðu bóli eru stjórnmál og stjórnmálamenn jafnmikið í fjölmiðlum eins og á Íslandi. Stjórnmálamenn eru jafnvel hylltar sem frægðarpersónur og á landinu búa aðeins 320þús. Hjarðhegðun flokksmanna er mikil. Þessu þarf að linna. Hér skal ítrekað að 320þús manns búa á Íslandi.
* Það er áriðandi að byggja upp gagnsæ og árangurstengd vinnubrögð við stjórnun Íslands. Því þarf að ráða hæft fólk í þau störf. Íslenskir stjórnmálamenn eru að mörgu leyti vanhæfir vegna m.a. vinatengsla og hagsmunatengsla flokkana þar sem hér eru aðeins 320þús íbúar og klíku og einka vina greiðar algerir. 1.200 milljónir króna skammtar fjórflokkurinn sér árlega, ekki á að skera það niður?-nei-það eru öruggar tekjur til
X-D, X-V, X-S og X-B og nú
X-O.
Eigendur verkefnisins www.hvitbok.vg
sendið okkur póst á hvitbok@hvitbok.vg Fréttir og annað efni hefur verið safnað saman á veraldarvefnum hjá: Vísir.is, DV.is, mbl.is, amx.is,einnig úrdráttur úr fréttum Stöðvar 2 og Ríkisútvarps og sjónvarps.
Ef þú/þið sjáið staðreyndarvillur eða hafið eitthvað við innihald og efni heimasíðunnar að athuga þá vinsamlegast verið í sambandi. hvitbok@hvitbok.vg
Einnig óskar Hvítbók eftir öllum þeim upplýsingum er þú kannt að hafa og geta komið að gagni fyrir heimasíðuna www.hvitbok.vg
Heimasíðan er vistuð á Bresku Jómfrúareyjunum.
Virgin Islands.