<< Til Baka Senda á Facebook

Hvítbók

Aðstandendur Hvítbókar vilja sannleikann uppá borðið fyrir íslenskan almenning, við viljum endurheimta hugsanlega það fé sem útrásarvíkingar hafa komist undan með og við ætlum ekki að greiða upp skuldir útrásarvíkinga erlendis.

Við flokkum ábyrgð efnahagshrunsins á Íslandi eftirfarandi:

1. Einkavæddu bankarnir.

2. Útrásarvíkingar og tengd fyrirtæki þeirra.

3. Ríkisstjórnir 1999-2003

4. Fjármálaeftirlitið.

5. Seðlabanki Íslands.

6. Endurskoðendafyrirtæki tengd Útrásarvíkingum.

7. Fjölmiðlar.

8. Forseti Íslands.


Okkar kröfur

1. Íslenskur almenningur vill endurheimta það fé sem hér  hefur verið stolið og/eða komið    undan í hugsanleg skattaskjól og/eða í var erlendis.

2. Vísum skuldum útrásarvíkinga og bankaeiegnda til föðurhúsanna, íslenskur almennigur á ekki að greiða skuldir þessara óreiðumanna.

3
. Íslenskur almenningur sættir sig ekki við að hér á lítið sem ekkert að rannsaka eftir 1 stk efnahagshrun.

4. Til að læra af reynslunni þarf að koma í veg fyrir að 1 stk efnahagshrun geti átt sér stað aftur.

5. Þeir sem kunna að hafa stolið/komið undan fjármagni verði látnir sæta hámarks refsingu fyrir íslenskum dómstólum.

6. Þeir sem kunna að hafa brugðist starfi sínu og þá hugsanlega vegna gáleysis verði látnir sæta  ábyrgð.