Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

staðfestir að Hreinn Loftsson hafi reynt

Eyjan, Innlent - þriðjudagur - 23.2 2010 - 15:29

Fyrrum ritstjóri DV staðfestir að Hreinn Loftsson hafi reynt að hafa áhrif á fréttaskrif blaðsins

sme1.jpgHreinn Loftsson útgefandi DV reyndi að hafa áhrif á fréttaskrif blaðsins þegar Sigurjón M. Egilsson var ritstjóri.

Þetta staðfestir Sigurjón í samtali við Pressuna . Hann segir að Hreinn hafi beitt sér símleiðis og í tölvupóstum.

Ritstjórinn fyrrverandi. segir að hann hafi undir höndum tölvupósta sem sýni fram á þetta. Hann ætlar þó ekki að birta efnið. Hann tekur fram að viti ekki hvernig málum er háttað á DV eftir að Reynir Traustason varð ritstjóri.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson greindi upphaflega frá því að Sigurjón M. Egilsson hefði sagt sér frá tilburðum Hreins til að stjórna fréttaskrifum DV. Hannes segir að Hreinn hafi haldið áfram sömu iðju og riti meðal annars ýmislegt nafnlaust efni í blaðið.

Í væntanlegu fjölmiðlafrumvarpi Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra eru ákvæði sem tryggja eiga sjálfstæði ritstjórnar gagnvart eigendum, en engin slík ákvæði eru í gildandi lögum.