<< Til Baka Senda á Facebook

Hreinn Loftsson

Pressan 13. des. 2009 - 19:15

Hreinn Loftsson æfur út í Bjarna Ben: Ómerkingur sem ætti ekki að koma nálægt stjórnmálum

Hreinn Loftsson, eigandi DV, vandar Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins ekki kveðjurnar í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér undir kvöld. Hann segir Bjarna ómerking sem ætti ekki að koma nálægt stjórnmálum. Hann kallar Bjarna sömuleiðis símadóna.

Í viðtali við dv.is fyrr í dag sagði Hreinn að Bjarni hafi hringt í sig og farið fram á að blaðið hætti að fjalla um viðskipti fyrirtækja í eigu fjölskyldu Bjarna. Sjálfur hefur Bjarni þvertekið fyrir að tengjast þessum viðskiptum á nokkurn hátt.

Bjarni sagði við Pressuna í dag að hann hafi ekki farið fram á að fréttaflutningurinn yrði stöðvaður. Hann hafi hringt í blaðamann DV og beðið um að rangfærslur yrði leiðréttað en blaðamaður neitað að verða við því. Þess vegna hafi hann hringt í Hrein og látið í ljós þá skoðun sína að slík blaðamennska væri óásættanleg. Bjarni segir jafnframt að honum hafi ekki gefist tími til að ljúka símtalinu því Hreinn hafi skellt á hann. Bjarni sagðist jafnframt ekki ætla að ræða frekar við blaðamenn DV.

Hreinn svarar fyrir sig í yfirlýsingu sem birt er á dv.is. Þar segir hann:

„Bjarni Benediktsson er ómerkingur og ætti ekki að koma nálægt stjórnmálum. Hann lýgur því að Pressunni að ég hafi ekki borið upp þá spurningu við hann, hvers hann ætlaðist til af mér í framhaldi af athugasemdum hans við fréttaflutning DV í símtali fyrr í dag. Þessa spurningu bar ég fram og hann svaraði því til að ég ætti að stöðva þennan fréttaflutning. Þetta var ekki langt samtal, það er rétt hjá Bjarna, því ég sagðist ekki lúta boðvaldi hans og hann skyldi gera athugasemdir við ritstjórn DV, ef hann teldi ekki rétt með farið varðandi þessar fréttir. Þá er það einnig rétt hjá Bjarna, að ég skellti á hann, enda er ég ekki vanur að eiga löng samtöl við símadóna af þessu tagi.“