
Athugið: Hvítbók.vg metur Hannes Smárason til hugsanlega útrásarvíkings og viðskiptajöfurs? Hvítbók.vg hefur ítrekað reynt að finna tölfupóstfang og símanúmer Hannesar en án árangurs. Við bendum Hannesi á að ef við förum með staðreyndarvillur og/eða hann vill einhverjar úrbætur um umfjöllun um sig á Hvítbók.vg þá biðjum við hann um að senda okkur póst á hvitbok@hvitbok.vg Við munum taka allar ábendingar um hugsanlegar úrbætur og yfirfara og meta. Hvítbók.vg er ekki að dæma hugsanlega útrásarvíkinga og viðskiptajöfra fyrirfram um hugsanlega meinta glæpi eða afglöp í starfi, heldur var ráðist í þetta verkefni til að vera með stærsta uppfletirit um bankahrunið í haust á einum stað. Verkefnið verður kynnt um allan heim síðar í ár. Vinna er þegar hafin á því.
Hannes Smárason nam vélarverkfræði í Boston í USA. Hann varð aðstoðar forstjóri Kára Stefánssonar í Íslenskri Erfðagreiningu uppúr 1998. Margir vilja meina að hlutabréfa kaup í DeCode hjá íslenskum almenningi hafi verið hönnuð atburðarás Hannesar og Kára með aðstoð m.a Bjarna Ármannssonar þáverandi bankastjóra Fjárfestingabanka Atvinnulífsins FBA. Allir vita hvernig það ævintýri endaði fyrir flesta Íslendinga. Talið er að Hannes hafi náð að efnast töluvert á snúningunum með DeCode bréfin. Eftir sátu þúndir Íslendinga með sárt ennið.
Hannes kvæntist dóttir Byko eigandans Jóns Helgasonar. Hannes náði að komast í stjórn Kers 2002 og segja margir að þá hafi boltinn byrjað að rúlla að alvöru hjá Hannesi.
Brotlending hans varð síðan árið 2007 þegar hann var hreint og beint hent útúr FL Group. Eitt stærsta tap sögunnar í FL Group má m.a. annars skrifa á útrásarvíkinginn Hannes Smárason. Margir hafa gagnrýnt milljarða rekstrarkostnað FL Group en Hannes hefur varið og talið hann eðlilegan (á þeim tíma).
Viðtal sem tekið var við hann af Stöð 2 eftir bankahrunið í október markaði nýtt upphaf útrásarvíkingsins Hannesar Smárasonar. Í því viðtali ítrekaði hann að hann ætti nær ekkert en myndi koma að endurreisn Íslands, virkaði hinn kraftmikli fjárfestir frekar dapur í bragði og mikið sorrý. Allar hans eignir væru undir vegna banka hrunsins. Lítið hefur sést og spurst til Hannesar eftir það.
Hannes Smárason býr í góðu yfirlæti í London ásamt unnustu sinni, börnum og barnfóstru. Séð og heyrt greindi í gæ
r frá því að Hannes sé almennt í góðum málum þótt vinunum hafi fækkað eitthvað eftir að auður hans rýrnaði í FL-Group hruninu. Hannes Smárason var eitt rómaðasta andlit útrásarinnar og íslenska efnahagsundursins þar til hann hvarf þegar FL-Group hrapaði með miklum skelli. Síðan þá hefur lítið sem ekkert til Hannesar spurst en margir hafa forvitnast um afdrif hans.
Þannig hefur Egill Helagson meðal annars lýst eftir Hannesi á bloggsíðu sinni. Hannes er nú kominn í leitirnar en Séð og heyrt greinir frá því að Hannes hafi það gott í London. Þar býr hann við góðan kost í Knightsbridge ásamt unnustu sinni, börnum og barnfóstru.
Séð og heyrt fullvissar alla þá sem óttuðust um afdrif Hannesar að honum líði vel í London og hann er sagður feginn að vera laus úr skarkala fjármálalífsins. Nú safni hann kröftum.