Höggvið á böndin
26.11.2009 12:38 Smásmugan
Smámugan hefur gaman að því að fylgjast með afdrifum útrásarvíkinga og bankamanna. Enda hafði hún töluverðar áhyggjur af því að þeir færu illa út úr kreppunni og gætu á endanum ekki séð sér og sínum farborða. En ótti Smásmugunnar virðist hafa verið óþarfur, allir eru þeir í prýðisgóðu ástandi og enginn hefur þurft að herða sultarólina. Í það minnsta ekki fyrrnefndir.
Einn þeirra er Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans. Hann tók sér úrræðagóða Íslendinga fyrri alda til fyrirmyndar og fluttist búferlum til Kanada. Þar tók á móti honum með virktum Gordon nokkur Reykdal sem Smásmugan gefur sér að sé kominn af Vestur-Íslendingum. Gordon réði Halldór í bankann sem hann stjórnar sem er vel, enda þekkt að Vestur-Íslendingar taki okkur frændsystkinunum opnum örmum. Frændskapur er líka hafður í miklum metum innan bankageirans svo þetta lá ljóst fyrir.
Smásmugan hefur fyrir satt að bankinn atarna sé nokkurs konar okurlánabanki - Cash Store Financial heitir hann. Vonandi að Halldór geti miðlað reynslu sinni og verið frænda okkar til halds og trausts.
Herra Reykdal ákvað þó augljóslega að slá varnagla viið ráðningu Halldórs því í fréttatilkynningu var Halldór titlaður sem fyrrverandi forstjóri í evrópskum banka. Evrópskum. Ekki einu sinni íslenskum eða norrænum. Nei, Gordon Reykdal er greinilega með vaðið fyrir neðan sig og passar sig að erfitt sé að tengja hinn nýja íslenska ráðgjafa við mesta bankaklúður fyrr og síðar.