Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Ráðherra vill ekki blanda sér í umræðu

Miðvikudagur 6. janúar 2010 kl 15:22

Höfundur: Sigurður Mikael Jónsson (mikael@dv.is)

Gylfi Magnússon, efnahags-og viðskiptaráðherra kveðst ekki vilja blanda sér í umræðuna um milljónakúlulán Elína Jónsdóttur nýráðins forstjóra bankasýslu ríkisins. Hann hafi ekki komið að ráðningunni og hann þekki ekki til málsins né bakgrunn Elínar.

Eins og DV greinir frá í dag seldi Elín eignarhaldsfélag sem skuldar 125 milljónir króna í fyrra. Stofnað hafði verið til skuldarinnar vegna kaupa á hlutabréfum í verðbréfafyrirtækinu Arev sem hún stýrði. Aðaleigandi Arev keypti félagið af Elínu og er skuldin á gjalddaga á næsta ári. Elín segir í DV í dag að henni hafi verið boðið að kaupa bréfin þegar hún varð framkvæmdastjóri Arev 2007.

Þorsteinn Þorsteinsson, stjórnarformaður bankasýslunnar segir á Pressan.is í dag að stjórnin hafi vitað af stöðu Elínar og ekki talið að það ylli vanhæfi hennar til að gegna forstjórastöðunni.

Gylfi segir í samtali við DV þegar hann er ynntur eftir skoðun sinni á málin að þetta sé mat stjórnarinnar en hann hafi ekki inni í málinu.