Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra
Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands, er fæddur í Reykjavík árið 1966. Hann er kvæntur Hrafnhildi Stefánsdóttur og eiga þau fimm börn, Margréti Rögnu (1998), Magnús Jóhann (2001), Stefán Árna (2003) og tvíburana Dóru Elísabetu og Jónu Guðrúnu (2007).
Námsferill
Gylfi varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1986 (eðlisfræðideild I) og cand. oecon. frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands (þjóðhagskjarna) 1990. Hann nam hagfræði við Yale University í Bandaríkjunum frá 1990 til 1998 og hlaut styrki frá skólanum öll árin. Hann varð M.A. í hagfræði 1991, M.Phil. 1994 og Ph.D. 1997. Sérgreinar í doktorsnámi voru atvinnuvegahagfræði, leikjafræði og fjármál, ritgerð fjallaði um byggðaþróun og byggðastefnu á Íslandi.
Starfsferill
Gylfi var sumarblaðamaður á Morgunblaðinu 1986-1990 og stundakennari við Menntaskólann við Sund 1988-1990. Hann var aðstoðarkennari í Yale University 1992-1995. Gylfi var sérfræðingur á Hagfræðistofnun frá 1996 til 1998, stundakennari í viðskipta- og hagfræðideild H.Í. frá 1996 til 1998 og aðjúnkt frá 1997 til 1998. Hann varð síðan dósent í viðskiptaskor frá 1. október 1998 og við viðskiptafræðideild frá 1. júlí 2008, en fékk leyfi frá störfum frá 1. febrúar 2009 er hann var skipaður viðskiptaráðherra.
Stjórnunarstörf
Formaður viðskiptaskorar skólaárin, 2000-2004.
Forseti viðskipta- og hagfræðideildar, 2004-2007, í leyfi skólaárið 2006-7.
Formaður stjórnar sjóða á vegum Háskóla Íslands, 2001-2009.
Hefur einnig sinnt ýmsum öðrum stjórnunarstörfum á vegum Háskóla Íslands.
Í stjórn Kaupáss hf. (varaformaður), 2000-2003.
Í stjórn Sjúkrahúsapóteksins, 2001-2005.
Í stjórn Samtaka fjárfesta, 2001-2007.
Í stjórn Eignarhaldsfélagsins Verðbréfaþings, Kauphallar Íslands og Verðbréfaskráningar Íslands, 2004-2006.
Formaður stjórnar Samkeppniseftirlitsins, 2005-2009.
Í úthlutunarnefnd útflutningsverðlauna forseta Íslands, 2005 og 2006.
Formaður stjórnar Málræktarsjóðs, 2006-2009.
Varamaður í yfirfasteignamatsnefnd, 2007-2009.
Kennslugreinar
Við Menntaskólann við Sund: Hagfræði.
Við Yale University: Rekstrarhagfræði fyrir B.A./B.S. nemendur og nemendur í meistaranámi.
Við Háskóla Íslands: Hefur kennt tæplega 20 námskeið, ýmist einn eða með öðrum, bæði í grunn- og meistaranámi. Flest hafa fjallað um fjármál eða rekstrarhagfræði en hefur einnig kennt námskeið um alþjóðahagfræði, leikjafræði, þjóðhagfræði og fleira. Hefur einnig leiðbeint á annað hundrað nemendum við skrif lokaritgerðar, þar af um fjórðungnum vegna meistararitgerðar.
Viðurkenningar og styrkir
Fulbright styrkur, 1990. Styrkur frá American Scandinavian Foundation, 1990. Styrkir frá Yale öll námsárin. Raymond Powell Prize for Teaching, Yale 1996.
Nánara æviágrip Gylfa Magnússonar, ásamt greinasafni og helstu fyrirlestrum
.
Af heimasíðu Gylfa,
Ég heiti Gylfi Magnússon og er dósent í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Ég kenni einkum fjármál og skyldar greinar. Frá og með 1. febrúar 2009 gegni ég embætti viðskiptaráðherra og er því í leyfi frá störfum mínum fyrir skólann. Hér er löng og ítarleg ferilskrá (CV).
Þess má geta að ég er Reykvíkingur að uppruna en bý nú á Seltjarnarnesi, K.R.-ingur af sál og líkama (einkum sál), lærði í Vesturbæjarskóla,Hagaskóla, M.R. og loks viðskipta- og hagfræði í Háskóla Íslands áður en ég hóf nám í Yale haustið 1990. Ég lauk doktorsnámi í hagfræði við Yale árið 1997. Ég er kvæntur Hrafnhildi 
Stefánsdóttur og við eigum fimm börn, Margréti Rögnu (1998), Magnús Jóhann (2001), Stefán Árna (
2003) og tvíburana Dóru Elísabetu og Jónu Guðrúnu (2007).
Ég vann hjá Vegagerð Ríkisins sumrin 1982-1985, var blaðamaður á Morgunblaðinu sumrin
1986 til 1990, kenndi í M.S. 1988-90 og í Yale frá 1992 til 1995. Frá árinu 1996 hef ég starfað í Háskóla Íslands.
Ég skokka af og til.
Ég hef ferðast til nokkurra landa en á þó fleiri eftir.
Hér eru tenglar í nokkrar greinar, fyrirlestra og annað efni eftir mig sem er aðgengilegt á vefnum.
www3.hi.is/~gylfimag/