Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Gunnar Páll Pálsson

 
06. maí 2010 - 22:05

Fyrrum stjórnarmaður Kaup- þings um handtökurnar: Maður er bara hálf lamaður eftir þetta

Gunnar Páll Pálsson var stjórnarmaður í Kaupþingi frá árinu 2001 til hruns.

Gunnar Páll Pálsson var stjórnarmaður í Kaupþingi frá árinu 2001 til hruns.

Fyrrum stjórnarmaður Kaupþings, Gunnar Páll Pálsson, segist ekki vita meira um málefni Kaupþingsmannanna Hreiðars Más og Magnúsar Guðmundssonar. Segist hann vera hálf lamaður eftir að hafa heyrt af ákærum sérstaks saksóknara.

Gunnar Páll Pálsson var stjórnarmaður í Kaupþingi frá árinu 2001 og fram að hruni bankans. Hann sat þar fyrir hönd verkalýðsfélagsins VR en þar var hann stjórnarformaður.

Í samtali við Pressuna kvaðst Gunnar Páll ekki hafa verið kvaddur til yfirheyrslna hjá sérstökum saksóknara vegna málefna Kaupþings og sagðist því ekkert vita um hvað málin snerust umfram það sem fram hefði komið í fréttum í dag. Spurður um viðbrögð við handtökunum í dag sagði Gunnar Páll;

Maður er bara búinn að vera hálf lamaður yfir þessu öllu. En ég veit ekkert meira en bara það sem hefur komið fram í fréttum í dag.

Gunnar Páll sagðist ekkert geta sagt til um hvort hann eða aðrir fyrrverandi stjórnarmenn Kaupþings yrðu kallaðir til yfirheyrslna vegna málefna Kaupþings. Það yrði bara að koma í ljós.

Gunnar Páll Pálsson formaður VR hefur starfað hjá verkalýðsfélaginu frá 1991, fyrst sem forstöðumaður fjármála- og hagdeildar VR og síðan sem formaður frá árinu 2002. Samkvæmt vefsíðu VR situr Gunnar Páll í miðstjórn Alþýðusambandsins og í stjórnum Landssambands íslenskra verslunarmanna, Lífeyrissjóðs verslunarmanna og KB banka (Kaupþings).

Verslunarmannafélag Reykjavíkur skipti um nafn fyrir nokkru og heitir í dag einfaldlega VR. Á vefsíðu félagsins má sjá að í hugum þeirra sem þar ráða, standa stafirnir VR fyrir virðingu og réttlæti. Það þótti því kaldhæðni örlaganna þegar formaður VR var staðinn að því að stunda allt annað en virðingu og réttlæti gagnvart félagsmönnum VR hvers hagsmunagæsla á að vera hans forgangsmál.

Sem stjórnarmaður í Kaupþingi banka hf. stóð Gunnar Páll að því að fella niður ábyrgðir lykilstarfsmanna bankans vegna lána sem þeir höfðu tekið vegna hlutabréfakaupa í bankanum. Gunnar Páll var reynslumesti stjórnarmaður Kaupþings þegar ákvörðunin var tekin, hann hafði einn stjórnarmanna setið í stjórn bankans frá árinu 2001.

Um miðjan janúar 2009 bárust síðan af því fréttir að Gunnar Páll hafi setið í lánanefnd Kaupþings banka sem lánaði vildarvinum bankans 84 milljarða í ágúst og september 2008 - hálfum mánuði fyrir fall bankanna. Heimildir herma að hér sé um sömu milljarðana að ræða og fjallað er um í færslu annars staðar hér á síðunni undir heitinu 100 milljarða millifærslur Kaupþings.

 

Óunnið vegna þessarar fréttaskýringar

Skýra frá ástæðum Gunnars Páls fyrir setunni í stjórn Kaupþings, og ástæðunni fyrir því að hann fylgdi mönnum í ákvörðunum eins og þessari.

http://ragnar73.blog.is/blog/ragnar73/entry/776500/



Sendið okkur upplýsingar, myndir og annað efni á
hvitbok@hvitbok.vg