Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, sagði DV að veislan sem skilanefnd Glitnis hélt á vetingastaðnum Panorama í lok apríl væri það eina sem skilanefndin hefði leyft sér síðustu níu mánuðina og hið sama gilti um aðra starfsmenn.
Það vekur þó furðu að skilanefndarfólk sem rukkar allt að 25 þúsund krónur á tímann fyrir þjónustu sína skuli ekki geta greitt sjálft fyrir gin og tónik á barnum. Heimildir herma að Páll Eiríksson, bróðursonur Árna Tómassonar, hafi haft umsjón með veislunni.
Árni réð hann sem kunnugt er til að vera lögmaður skilanefndarinnar og situr Páll auk þess í slitastjórn gamla Glitnis.