Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

How big is Glitnir

How big is this Glitnir?“
Lárus Welding var orðinn forstjóri Glitnis á þessum tíma og fór fyrir ferðalöngum.

Lárus Welding var orðinn forstjóri Glitnis á þessum tíma og fór fyrir ferðalöngum.

Föstudagur 26. júní 2009 kl 08:30

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Nánar um málið í DV í dag.

Glitnir bauð fríðum hópi manna í boðsferð til New York-borgar í september árið 2007. Tilefni ferðarinnar var opnun útibús Glitnis í New York og þátttaka í orkuráðstefnu. Forseti Íslands var með í för og fór svo fögrum orðum um íslensku orkuútrásina að Bjarni Ben og Árni Sigfússon muna ennþá eftir því.

Ekkert var til sparað í ferðinni og var gist á fimm stjörnu hóteli. Auk þess var veitt vel í mat og drykk og heimsþekktur djassisti lék undir borðum. Þarna stóð íslenska orkuútrásin sem hæst og REI átti að sigra heiminn. Ferðin er rifjuð upp í helgarblaði DV sem kemur út í dag.

Strax var ljóst að hinir erlendu gestir voru hissa á „lúkkinu“ á öllu saman og fannst mikið til koma. Í samræðum nokkurra úr íslenska hópnum í kaffipásu var hlegið. Einn sagði stoltur frá því hvernig Bandaríkjamennirnir hefðu spurt hann: „How big is this Glitnir?“ Ljóst var að honum og öðrum á vegum bankans leiddist ekki að Bandaríkjamennirnir virtust alveg steinhissa og hreinlega ekki trúa sínum eigin augum. Einn viðmælandi sem var staddur í New York segir íburðinn hafa komið erlendum ráðstefnugestum í opna skjöldu og svo virðist sem þeir hafi talið Glitni miklu stærri en raunin var.

Allt um málið í DV í dag