Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Friðrik kjörinn stjórnarformaður


Mánudagur 25. janúar 2010 kl 15:02

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Friðrik Sophusson, fyrrverandi fjármálaráðherra og forstjóri Landsvirkjunar, hefur verið kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka. Sjö manna stjórn var kjörin á hluthafafundi í dag og voru sex skipaðir af eignarhaldsfélaginu ISB Holding ehf., sem er í eigu Glitnis banka hf.

Þessi sjö voru kjörin í stjórn:

Neil Graeme Brown
Neil Graeme Brown er breskur ríkisborgari og hefur yfirgripsmikla reynslu á sviði fjármálastarfsemi og endurskipulagningar alþjóðlegra fyrirtækja. Neil Brown hefur m.a. starfað sem yfirmaður fjármálaþjónustu Apax Partners.

John E. Mack
John E. Mack er Bandaríkjamaður og hefur mikla þekkingu og reynslu á sviði alþjóðlegrar banka- og fjármálaþjónustu sem og á sviði yfirtöku og samruna fyrirtækja. Þá hefur hann nokkra sérþekkingu á sviði innleiðingar góðra stjórnarhátta fyrirtækja (Corporate Governance).

Raymond J. Quinlan
Ray J. Quinlan er Bandaríkjamaður og hefur starfað þar á fjármálamarkaði um áratugaskeið. Hann starfaði hjá Citibank og félögum tengdum bankanum frá 1983 - 2007. Ray Quinlan var stjórnarformaður og forstjóri viðskiptabankasvið Citibank í Norður-Ameríku á árunum 2005-2007 og var ábyrgur fyrir rekstri um 3500 útibúa.

Friðrik Sophusson
Friðrik Sophusson hefur víðtæka reynslu og þekkingu á sviði efnahagsmála og stjórnunar fyrirtækja og hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök. Friðrik var framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags Íslands frá árinu 1972 til 1978 þegar hann tók sæti á Alþingi. Hann gegndi þingmennsku um tuttugu ára skeið eða allt til ársins 1998. Friðrik átti sæti í ríkisstjórn árin 1987 - 1988, þá sem iðnaðar og orkumálaráðherra og síðar sem fjármálaráðherra 1991 - 1998. Árið 1999 tók Friðrik við starfi forstjóra Landsvirkjunar sem hann gegndi í tæp 11 ár. Friðrik hefur sinnt fjölda trúnaðarstarfa og átt sæti í stjórnum fjölmargra fyrirtækja og stofnana. Þeirra á meðal eru seta í bankaráði Landsbankans á árunum 1990 - 1992, seta í stjórnum Pharmaco, Viðskiptaráðs, Enex, Samorku, Nordel og Eurelectric, samtaka evrópska raforkuiðnaðarins. Friðrik Sophusson var um árabil varaformaður Sjálfstæðisflokksins.

Marianne Økland
Marianne Økland er norskur ríkisborgari og starfar í dag sem framkvæmdastjóri Avista Partners sem sérhæfir sig í ráðgjöf á sviði skuldabréfaútgáfu og fjármögnunar. Marianne starfaði hjá JP Morgan árunum 1998-2007, m.a. sem sérfræðingur á sviði skuldabréfafjármögnunar fyrirtækja og fjármálastofnana á. Á árunum 1994-1998 starfaði hún við skuldabréfafjármögnun hjá Union Bank of Switzerland (UBS).

Árni Tómasson
Árni starfaði sem bankastjóri Búnaðarbankans frá 2001-2003, en hefur frá þeim tíma starfað við eigið ráðgjafarfyrirtæki. Árni var skipaður formaður skilanefndar Glitnis banka hf. í október 2008 og hefur leitt starfsemi nefndarinnar og samninga kröfuhafa Glitnis við íslenska ríkið frá þeim tíma.

Fulltrúi tilnefndur af Bankasýslu ríkisins samkvæmt tillögum valnefndar:

Martha Eiríksdóttir, Cand. Oceon og B.Ed.
Martha Eiríksdóttir er sjálfstætt starfandi verkefnastjóri. Hún starfaði sem yfirmaður viðskiptatengsla og markaðsmála hjá Landsneti hf. á árunum 2003-2009. Á árunum 2001-2003 var hún framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Íslandssíma hf. Martha starfaði sem deildarstjóri hjá Europay International í Belgíu um sex ára skeið, frá 1994-2000 en hún hafði áður starfað sem forstöðumaður markaðssviðs Kreditkorts hf. á Íslandi. Þá var Martha forstöðumaður markaðssviðs Útvegsbankans á árunum 1988-1990. Martha tók sæti í bankastjórn Íslandsbanka í febrúar 2009 og er varaformaður sjtórnar, hún var stjórnarformaður Kreditkorts hf. 2008-2009 og hefur setið stjórn Icelandair Group frá 2006.