Írska fjármálafyrirtækið Burlington Loan Management er stærsti erlendi kröfuhafi Glitnis samkvæmt kröfuhafaskrá bankans. Heildarkröfur Burlington nema hátt í 150 milljörðum kr.
Af öðrum stórum erlendum kröfuhöfum má nefna Royal Bank of Scotland sem gerir kröfur upp á hátt í 100 milljarða kr. og Deka Bank í Þýskalandi sem gerir kröfur upp á hátt í 90 milljarða kr.
Af öðrum erlendum kröfuhöfum sem gera kröfur sem nema yfir 10 milljörðum kr. hver má nefna Sumitomo Mitsui og Nomura í Japan, frönsku bankana Credit Argicole og Socété Générale, USB í Sviss og Fortis bankann.