Geir Hilmar Haarde (fæddur 8. apríl 1951) hagfræðingur er fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra Íslands.
Margir vilja meina að Geir hafi í senn staðið sig vel í því að halda þjóðinni frá sannleikanum ári fyrir hrun og í hruninu hafi honum tekist einkar vel til að beina athygli almennings frá staðreyndum og sannleika þess hrunsi sem íslenskur almenningur fékk í fangið og í sífellu bent á að hrunið hafi verið vegna ytri aðstæðna í hvirfilbyl fjármálaheimsins. Skjaldborg fjármálseiganda var tryggð. Skjaldborg heimilinna var frasi sem enn glymur frá ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir.
Geir lauk stúdentsprófi frá MR 1971. Geir starfaði sem blaðamaður Morgunblaðsins um sumrum 1972-1977. BA-próf í hagfræði frá Brandeis-háskóla, Bandaríkjunum, 1973. MA-próf í alþjóðastjórnmálum frá Johns Hopkins-háskóla, Bandaríkjunum, 1975. MA-próf í hagfræði frá Minnesota-háskóla, Bandaríkjunum, 1977. Árið 2007 veitti Minnesota-háskóli honum heiðursdoktorsnafnbót. Geir vann sem hagfræðingur í alþjóðadeild Seðlabanka Íslands 1977-1983. Aðstoðarmaður Alberts Guðmundssonar, fjármálaráðherra 1983-85 og Þorsteins Pálssonar 1985-87.
Geir sat á Alþingi fyrir Reykjavík á árunum 1987-2009 og var formaður þingflokks sjálfstæðismanna frá 1991-1998. Geir var skipaður fjármálaráðherra árið 1998. Geir var utanríkisráðherra í ríkisstjórn Halldórs Ásgrímssonar. Geir tók við embætti utanríkisráðherra og formennsku í Sjálfstæðisflokknum af Davíð Oddssyni, er hann hvarf af vettvangi stjórnmála á árinu 2005. Eiginkona Geirs er Inga Jóna Þórðardóttir.
Í beinni útsendingu frá Valhöll, höfuðstöðvum Sjálfstæðisflokksins, 23. janúar 2009 tilkynnti Geir að hann hefði nýlega greinst með krabbamein í vélinda og þyrfti að fara utan til meðferðar. Hann tilkynnti jafnframt að hann myndi láta af formennsku í Sjálfstæðisflokknum eftir næsta landsfund og segja skilið við stjórnmálin. Hann sagðist vilja efna til kosninga 9. maí 2009.[1] Geir baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt 26. janúar 2009 og forseti Íslands veitti honum lausn frá embætti. Þegar styrkjamálið kom upp í apríl 2009 tók Geir á sig sökina. [2] Hann gaf frá sér þannig tilkynningu: „Ég ber því sem formaður flokksins á þeim tíma einn alla ábyrgð á þessu máli. Sama er að segja um hátt framlag frá Landsbanka Íslands frá sama tíma. Framkvæmdastjórar flokksins, núverandi og fyrrverandi, bera hér enga ábyrgð.“