Stoðir ehf. (áður
FL Group og enn fyrr
Flugleiðir) er fjárfestingarfyrirtæki með sérstaka áherslu á fjárfestingar í
flugrekstri og
ferðaþjónustu og var um tíma stærst á því sviði á
Íslandi. Fyrir
10. mars 2005 hét fyrirtækið Flugleiðir og snerist rekstur þess félags lengst af að mestu um flugsamgöngur. Flugleiðir urðu til árið
1973 við sameiningu flugfélaganna
Flugfélags Íslands og
Loftleiða. Eftir að nafni fyrirtækisins var breytt í FL Group fór rekstur þess smám saman að snúast meira um fjárfestingar og að lokum dró félagið sig að mestu út úr flugrekstri. Nafni félagsins var aftur breytt árið
2008 og heitir það nú Stoðir eignarhaldsfélag, það fór fram á greiðslustöðvun þann
29. september 2008 eftir að
ríkissjóður Íslands keypti 75% hlut í viðskiptabankanum
Glitni sem Stoðir áttu um þriðjungshlut í. Heimasíða FL Group / Stoðir
hér.