Pressan, 27. ágú. 2009 - 18:47
Gunnar Þ. Andersen viðurkennir mistök: Lánabók Kaupþings barst FME í lok júlí
Gunnar Þ. Anderson viðurkennir mistök sín í Viðskiptablaðinu. Pressuúttekt Ólafs Arnarssonar staðfest. fme.is
Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, hefur nú viðurkennt að Fjármálaeftirlitinu hafi borist skjal með upplýsingum um lán til 2006 viðskiptavina Kaupþings, í lok júlí 2009. Gunnar neitaði þessu í Kastljósinu 11. ágúst síðastliðinn, en Ólafur Arnarson, Pressupenni hefur ítrekað haldið því fram að FME hafi haft þessar upplýsingar undir höndunum. Pressuúttekt Ólafs um málið frá því 10. ágúst má nálgst hér og í pistli frá 12. ágúst hér.
FME bárust upplýsingarnar í leigubíl ásamt öðrum skjölum sem óskað eftirlitið hafði óskað eftir frá Kaupþingi. Þetta kemur fram á vefsíðu Viðskiptablaðsins, www.vb.is.
Í viðtali við Viðskiptablaðið segir Gunnar að hann hafi ekki vitað um umrædda gagnasendingu í fyrrnefndu Kastljóss-viðtali, en hafi í kjölfar viðtalsins látið kanna málið betur. Sú athugun, að hans sögn hafi leitt í ljós að gögnin hafi borist eftirlitinu í lok síðasta mánaðar.
Lánabók Kaupþings hefur borist eftirlitinu þrisvar sinnum á rafrænu formi, fyrst um áramótin samkvæmt Gunnari. Hann vísar því alfarið á bug að FME hafi lekið upplýsingunum til wikileaks.org og segir að eftirlitið sé búið að ákveða að kæra málið, þ.e. lekann og birtingu gagnanna, til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra.