Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Níu manna þingnefnd taki við skýrslu rannsóknarnefndar.

Eyjan Innlent - þriðjudagur - 1.12 2009 - 08:56

Níu manna þingnefnd taki við skýrslu rannsóknarnefndar. Ákvæði um friðhelgi frá málsókn

rannsoknarnefnd3.jpgAlþingi mun kjósa níu þingmenn í nefnd til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar um bankahrunið og móta tillögur að viðbrögðum Alþingis við niðurstöðum hennar. Nefndarmenn í rannsóknarnefndinni fá friðhelgi gagnvart málshöfðunum í tengslum við skýrsluna.

Þetta eru meðal efnisatriða í frumvarpi sem forsætisnefnd Alþingis lagði fram í gær.

Forsætisnefndin vill að þingmenn beri í sameiningu fram einn lista við kjör þingmannanefndarinnar.

Fram kemur að viðfangsefni þingmannanefndarinnar og þingsins í heild muni ráðast af efni og efnistökum í skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Í greinargerð með frumvarpinu segir: „Meðal þeirra sjónarmiða sem lágu til grundvallar skipun nefndarinnar var að fagleg greining á ástæðum bankahrunsins þyrfti að liggja til grundvallar almennu pólitísku uppgjöri málsins. Væntingar standa til þess að á grunni skýrslunnar verði unnt að draga almenna lærdóma af efnahagsáföllunum. Þingmannanefndin mun að líkindum fjalla um það atriði. Eftir atvikum kemur það enn fremur í hlut hennar að móta afstöðu til ábyrgðar í málinu að því marki sem það er hlutverk þingsins. Þá má ætla að þingmannanefndin fylgi eftir ábendingum rannsóknarnefndarinnar um breytingar á lögum og reglum sem miða að því að koma í veg fyrir að atburðir af því tagi sem urðu hér á landi haustið 2008 endurtaki sig.“

Í frumvarpi forsætisnefndar er einnig gert ráð fyrir að þeir sem sitja í rannsóknarnefndinni fái friðhelgi enda sé ekki útilokað að þeir sem hlut eiga að máli muni telja að ummæli eða upplýsingar sem birtast í skýrslunni vegi að réttindum þeirra, svo sem friðhelgi einkalífs. Í greinargerðinni segir að mikilvægt sé að nefndarmenn sem vinna að gerð skýrslunnar taki afstöðu til þess hvað eigi að birta án þess að þurfa að leiða hugann að því hvort þeir kunni persónulega að þurfa að taka til varna í dómsmálum út af því sem fram kemur í skýrslunni. Jafnframt mundi slík málsókn leiða til fjárútláta nefndarmanna sem gætu orðið verulega íþyngjandi. “Ekki getur talist sanngjarnt að þeir verði þvingaðir til að grípa til varna fyrir það lögmælta verkefni sem þeim var trúað fyrir af Alþingi og hugsanlega bera af því fjárhagslegt tjón. Af þessum sökum er hér lagt til að þeim einstaklingum sem unnið hafa að rannsókninni sé veitt ákveðin vernd gegn slíkum málsóknum. Sú vernd mun ekki aðeins ná til nefndarmanna í rannsóknarnefndinni heldur t.d. einnig til þeirra sem tóku sæti í vinnuhópi til að fjalla um það hvort rekja megi ástæður hrunsins til siðferðis eða vinnubragða og til þeirra sem eftir atvikum munu vinna að framhaldsrannsókn í samræmi við frumvarp þetta,“ segir í greinargerðinni.

Ekki er settur ákveðinn tímafrestur fyrir athugun þingmannanefndarinnar. Í greinargerð með frumvarpinu segir að eftir sem áður sé mikilvægt að hraða meðferð málsins eftir fremsta megni og að þingmannanefndin setji sér skýr markmið í þessu efni.